Steypireyður getur haldið niðri í sér andanum í klukkutíma þegar hún kafar. En hvernig fer hún að því að sofa? Sefur hún kannski fljótandi í yfirborðinu?
Dýr með stóran heila þurfa undantekningarlaust að hvílast og sofa reglubundið. Þetta getur verið vandasamt fyrir hvali, sem eins og öll önnur spendýr þurfa að anda að sér lofti. Hvalir hafa þó dregið úr þörf sinni fyrir að anda með því að þróa þann hæfileika að geta haldið ni...
Þekking manna á norrænni goðafræði kemur fyrst og fremst úr Eddunum tveimur, Eddukvæðum og Snorra-Eddu, þar sem Snorri Sturluson skrifaði m.a. sagnir af goðunum.
Höfundar kvæðanna í eldri Eddunni eru óþekktir, en í þessari bók er bæði að finna goðakvæði og hetjukvæði. Þekktust goðakvæðanna eru Hávamál og Völuspá þar sem segir af sköpun heimsins, endalokum hans og endurreisn. Óðinn, sem er...
Er það rétt að tíkur geti leyst upp fóstur sín ef ekki árar til að fæða hvolpa?
Bæði menn og dýr eiga á hættu að meðgöngu ljúki fyrir eðlilegan tíma. Ýmsar ástæður geta verið fyrir þessu, svo sem fæðuskortur eða kuldi, en líka eiturefni, sjúkdómar eða jafnvel erfðagallar.
Þegar afkvæmi fæðast svo vanburða að þau geta ekki lifað utan legsins er talað um fósturlát, en í flestum tilvikum birtast engin sýnileg ummerki um endalok ...
Stundum er talað um „sjálfsíkveikju“. Hvernig getur eldur kviknað af sjálfu sér?
Sjálfsíkveikja getur orðið mjög snögglega, t.d. þegar fosfór kemst í snertingu við súrefnið í loftinu. Oftast tekur þetta þó lengri tíma og er afleiðing óheppilegrar blöndu efnaferla og of mikillar einangrunar. Þannig getur eldur kviknað í klút sem er gegnvotur af olíu. Þegar olían gengur í efnasamband við súrefnið í loftinu myndast hitaorka og þa...
Fyrir nokkrum mánuðum sá ég fullt tungl sem virtist stærra en venjulega. Hvernig getur staðið á því?
Sumir hafa vafalaust tekið eftir því að í desember 2008 og janúar 2009 var fullt tungl óvenju stórt og skært. Þetta var engin sjónhverfing heldur er ástæðunnar að leita í braut tunglsins um jörðu.
Braut tunglsins kringum jörðina er nokkuð aflöng og fjarlægðin milli jarðar og tungls getur verið frá 363.300 upp í 405.500 km – se...