Lifandi Vísindi
 
Prenta
01.03.2006     3. Tölublað 2006 af Lifandi Vísindum komið út
3. tbl. 2006
3. tbl. 2006
Meðal efnis í 3. tölublaði 2006:

Venus og jörðin mynduðust úr sama rykskýinu og hnettirnir eru svipaðir að stærð. En þessar tvíburareikistjörnur hafa valið sér ólíkar brautir í lífinu. Nú á evrópska geimfarið Venus Express að gægjast undir þann þétta skýjahjúp sem hylur þessa glóandi heitu reikistjörnu.

Drengir verða brátt í minnihluta
Um allan hinn vestræna heim fæðast sífellt færri drengir. Fræðimenn grunar að breytt fjölskyldumynstur sem og kemísk efni kunni að vera orsakavaldar. Eins skiptir máli að fleiri foreldrar vilja eignast stúlku – og þar geta vísindin komið til hjálpar.

Kína og Japan berjast um Asíu
Aukin spenna er milli Kína og Japan. Á sama tíma og þau eru að berjast um forystuhlutverkið í Asíu eru þau farin að rifast um fortíðinna.

Heimsins elsta stjörnukort
Árið 2002 náðu þýskir vísindamenn með aðstoð höndlara í einstakan grip: heila 3600 ára gamla bronsskífu sem sýnir himinhvolfið með sól, tungli og stjörnum í gulli. Platan er þar með heimsins elsta mynd af himninum.

TÆKNISÝN
Sumarleyfisdvöl undir yfirborðinu
Útsýnið frá Hótel Hydropolis í Dubai verður einstakt. Herbergin 220 verða nefnilega á 15 metra dýpi í Persaflóa. En það er víðar í veröldinni sem nú stendur til að reisa mannvirki á hafsbotni.

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Hvaðan þekkja menn norræna goðafræði?
Hvaðan þekkja menn norræna goðafræði? Þekking manna á norrænni goðafræði kemur fyrst og fremst úr Eddunum tveimur, Eddukvæðum og Snorra-Eddu, þar sem Snorri Sturluson skrifaði m.a. sagnir af goðunum. Höfundar kvæðanna í eldri Eddunni eru óþekktir, en í þessari bók er bæði að finna goðakvæði og hetjukvæði. Þekktust goðakvæðanna eru Hávamál og Völuspá þar sem segir af sköpun heimsins, endalokum hans og endurreisn. Óðinn, sem er æðstur hinna norrænu goða, kemur mjög við sögu í flestum goðakvæðunum. Óvíst er hvenær Eddukvæðin voru skrifuð niður, en svo mikið er víst að þau hafa mörg lifað alllengi í munnlegri geymd áður en að því kom. Snorri Sturluson skrifaði sína Eddu snemma á 13. öld. Hér er að finna nákvæmustu frásagnir af guðunum sem varðveist hafa, en það leynir sér þó ekki að höfundurinn var kristinn.