Lifandi Vísindi
 
Prenta
06.04.2006     5. Tölublað 2006 af Lifandi Vísindum komið út
5. tbl. 2006
5. tbl. 2006
Meðal efnis í 5. tölublaði 2006:

Fréttirnar streyma frá Satúrnusi
Cassini – farið og Huygens – kanninn hafa verið á ferð í nágrenni Satúrnusar í rúmt ár. Á þessum stutta tíma hafa þeir gert uppgötvanir sem breytt hafa skilningi okkar á þessum gasrisa og hinum fjölmörgu tunglum hans, en tvo þeirra hafa gufuhvolf

Riddararnir töpuðu 100 ára stríðinu
Brynvarðir riddarar höfðu kynslóðum saman verið ógnaraflið á öllum vígvöllum Evrópu. En í 100 ára stríðinu féllu riddararnir af baki. Hvað eftir annað sigruðu langbogasveitir Englendinga frönskuriddarana. Þar með voru riddararnir og heiðursreglur þeirra úr sögunni.

Hættulegar örverur til að lækna krabba
Veirur og bakteríur hafa ótrúlega hæfni til að rata að ákveðnum frumum í líkamanum, þrengja sér þar inn og eyðileggja þær. Þetta hyggjast vísindamennirnir nú hagnýta sér í baráttunni gegn krabbameini.

Ísjakar eru orðnir fleiri, stærri og hættulegri
Borgarísjakar eru fallegir - en hættulegir. Bæði í norðri og suðri fylgjast vísindamennirnir nú vandlega með þessum tröllum hafsins, að hluta til að koma í veg fyrir árekstra á borð við Títanik-slysið, en líka til að fylgjast með verkun gróðurhúsaáhrifanna á hnettinum.

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Hvernig getur vigt mælt fituhlutfall?
Vigtina snertir maður bara með iljunum. Hvernig geta sumar vigtir engu að síður mælt fituhlufall í líkamanum? Þegar maður stendur berfættur á vigtinni, sendir hún vægan og alveg hættulausan rafstraum upp í gegnum líkamann. Í þessu sambandi kemur það að góðum notum að líkamsfita leiðir nánast ekki rafstraum. Það gera aftur á móti vöðvar og aðrir líkamsvefir. Á leið sinni gegnum líkamann mætir rafstraumurinn mikilli mótstöðu frá fitufrumunum og aðeins lítill hluti hans nær að vinna sig í gegnum þessar frumur, sem í ofanálag virka eins og þéttir og halda straumnum í sér. Straumurinn er leiddur upp í gegnum annan fótinn og niður í gegnum hinn. Með nokkurri einföldun má segja að vigtin mæli hve mikið af rafmagninu skilar sér til baka. Aðferðin telst þó fremur ónákvæm til að mæla líkamsfitu. Jafnvel bestu vogir með þessum búnaði skila niðurstöðum sem skeikað getur um 4% og óvissumörkin geta verið mun stærri í ódýrum heimilisvigtum, ekki síst vegna þess að straumurinn berst aðeins um neðri hluta líkamans. Að auki hefur það áhrif á niðurstöðuna hvort maður er nýbúinn að drekka mikinn vökva eða tiltölulega lítill vökvi er í líkamanum. Hátt fituhlutfall eykur hættu á hjarta- og æðasjúkdómum. Konum er eðlilegt að hafa hærra hlutfall líkamsfitu en körlum.