 |
| 6. tbl. 2006 |
Meðal efnis í 6. tölublaði 2006:
Á slóðum forföðurs allra dýra
Fundur á ævafornum steingervingi í Kína færir óvænta þekkingu á þróun fyrstu flóknu dýranna. Steingervingurinn er ekki aðeins 50 milljón árum eldri en þeir sem áður hafa fundist – hann sýnir ennfremur að innri líffæri hafa ekki þróast í takt við stærð dýranna.
Gleymdir jársjóðir Egypta
Á leið sinni að fjársjóðum Tútank-Amons í egypska minjasafninu í Kaíró skunda grunlausir ferðamenn fram hjá öðrum sýningarsal þar sem sjá má alveg jafn glæsilega grafarmuni. Þessir fjársjóðir koma frá hinni fornu borg Tanis í óshólmum Nílar, um 130 km norðaustur af Kaíró, en fæstir hafa þó heyrt getið um þessar gersemar. Ein helsta ástæða þess er sú að síðari heimsstyrjöldin geisaði þegar grafirnar fundust.
Krabbar bjarga sér alls staðar
Þeir eru búnir brynju og plötum, verja sig ákaft með hvössum klónum og eru heimsmeistarar í hliðarhlaupi. Krabbarnir hafa aðlagað sig umhverfinu svo vel að þeir dafna bæði á láði sem í legi og jafnvel í trjákrónum frumskógarins. Með rannsóknum á um 5000 tegundum þeirra má sjá hvernig lífið gekk á land.
Lifðu í heila öld
Hollur matur. Ekkert tóbak. Áfengi í hófi. Þetta eru mikilvægir þættir í uppskriftinni að langri ævi. En þetta er þó alls ekki allur leyndardómurinn. Nýjar rannsóknir sýna að andleg þjálfun og félagsleg tengsl skipta einnig miklu máli. Síðast en ekki síst eru svo til fáeinir einstaklingar með gen sem leyfa þeim að gera allar hugsanlegar vitleysur og verða samt 100 ára.
Lífið er hrein stærðfræði
Voru stærðfræðitímarnir í skólanum dagleg plága? Reyndar getur svolítil stærðfræði hjápað við að leysa mörg hversdagsleg vandamál og einnig létt mönnum lífið. Og örvæntið ekki – það er ekki eins erfitt og ætla mætti.