Lifandi Vísindi
 
Prenta
21.08.2006     7. Tölublað 2006 af Lifandi Vísindum komið út
7. tbl. 2006
7. tbl. 2006
Meðal efnis í 7. tölublaði 2006:

Bók Kóperníkusar kippti stoðum undan kirkjunni.
Fyrir 500 árum gaf Kóperníkus út ritverk þar sem hann gerði sólina að miðju sólkerfisins. Nú hefur gröf hans fundist og verið opnuð. En strax fyrir dauða hans brutustu út harðvítugar deilur á þeirri jörð sem hann hafði lítillækkað niður í stöðu venjulegrar reikistjörnu. Kenning hans skipti hinum lærðu í tvo hópa, fylgjendur og andstæðinga.

Fyrstu stjörnurnar lifðu hratt og dóu ungar
Nú hefur geimsjónaukinn Spitzer rannsakað ljós frá fyrstu stjörnunum, sem kviknuðu fyrir 13,5 milljörðum ára. Þetta voru skammlífir risar og enduðu sem sprengistjörnur. Þannig lögðu þær grunninn að núverandi alheimi.

Veira frá 1918 gæti gagnast gegn fuglaflesnu
Sérfræðingar álíta aðeins tímaspursmál hvenær fuglaflensan þróist í alheimsfaraldur í mönnum. Flestir óttast endurtekningu á spænsku veikinni sem 1918 - 1919 breiddist út um allan heim og varð allt að 50 milljónum að bana. Þess vegna hafa vísindamennirnir nú vakið hættulegustu veiru sögunnar upp frá dauðum.

Kjarnorkuúrgangur öruggur í 100.000 ár
Ekkert land í heiminum hefur enn fundið endanlegan hvílustað fyrir hinn hættulega geislavirka úrgang sem kemur frá kjarnorkuverum. Svíþjóð og Finnland ætla að verða fyrstu löndin í Evrópu til þess. Úrgangurinn á að vera öruggur næstu 100.000 árin og aðferðirnar eru nú prófaðar 450 metra undir Äspö - rannsóknarstöðinni í Svíþjóð.

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Af hveru eru landdýrin nú smávaxnari en áður?
Hvernig stendur á því að landdýrin - og þá ekki bara risaeðlurnar - voru mun stórvaxnari á forsögulegum tíma?