Lifandi Vísindi
 
Prenta
21.08.2006     8. Tölublað 2006 af Lifandi Vísindum komið út
8. tbl. 2006
8. tbl. 2006
Meðal efnis í 8. tölublaði 2006:

Vísindamenn finna ástæðuna fyrir LYFLEYSUÁHRIFUM
Löngum hefur verið vitað að jákvæð áhrif fást af því einu að trúa að meðferð beri árangur. Gerð var tilraun þar sem
þátttakendur fundu fyrir talsvert minni sársauka eftir að hafa verið gefin lyfleysa og heilaskönnun leiddi á sama tíma í ljós að kvalastillandi efni, endorfín, voru leyst úr læðingi á fjórum stöðum í heilanum.

Manhattan Miðausturlanda
Hið litla furstadæmi Dubai er að breytast úr olíuríki í miðstöð verslunar og ferðamannaiðnað. Ríkir viðskiptajöfrar og fátækir farandverkamenn flæða inn í landið til að taka þátt í ævintýrinu, þar sem skýjakljúfar rísa upp á Methraða í eyðimerkursandinum.

Hvað ef ...
bíllinn með austurísk – ungverska krónprinsinum hefði ekki tekið ranga beygju þann 28. júní 1914 í Sarajevó? Þá hefði fyrri heimstyrjöldin jafnvel aldrei orðið að veruleika. Lesið um hvernig örlitlar tilviljanir breyta gangi sögunnar.

Hafið er fullt af óþekktu lífi
Stórir hlutar hafdjúpanna eru minna kannaðir en yfirborð tunglsins. En nú er hafið mikið rannsóknaverkefni sem ætlað er að kortleggja lífríkið í undirdjúpunum.

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Af hverju eru gervihnettir klæddir gullhúð?
Af hverju eru gervihnettir klæddir gullhúð? Á myndum af geimskipum og gervihnöttum má sjá að yst er þunn himna úr ekta gulli. Þetta er vissulega falleg sjón en gull er dýrt og er hér einungis notað vegna þess hve góða hitaeinangrun það veitir. Eitt erfiðasta vandamálið við smíði geimskipa og gervihnatta er að koma í veg fyrir ofhitnun í glóandi sólskininu úti í geimnum. Og hér kemur gullþynnan að góðu haldi. Úti í geimnum verður geimfarið bæði fyrir sýnilegu og innrauðu ljósi. Ál- og silfurþynnur eru ódýrari en vernda aðeins fyrir sýnilega ljósinu. Gullþynnan endurkastar hins vegar innrauðu geisluninni auk hins sýnilega ljóss. Hjálmar geimfara eru gullhúðaðir á sama hátt og af sömu ástæðu. Þeir vernda geimfarana fyrir geislun frá sólinni.