Lifandi Vísindi
 
Prenta
22.08.2006     11. Tölublað 2006 af Lifandi Vísindum komið út
11. tbl. 2006
11. tbl. 2006
Meðal efnis í 11. tölublaði 2006:

Lífið í geimferð
Afar ósennilegt! Það eru aðeins fáein ár síðan vísindamennirnir brugðust þannig við þeirri kenningu að lífið kynni að hafa borist hingað utan úr geimnum. En nú eru þeir að skipta um skoðun. Nýjar tilraunir sýna nefnilega að lífið gæti sem best hafa lifað af slíka ferð.

Út í íshvíta veröld
Birna með tvo húna brýst út úr dimmu vetrarskýlinu þar sem hún fæddi húnana. Ljósmyndarinn Thorsten Milse náði að fanga þetta einstæða augnablik á filmu.

Síðustu steinaldarmennirnir
Heimurinn hýsir enn manneskjur sem þekkja ekkert til siðmenningar. Nú á þetta fólk að fá leyfi til að vera í friði. En það er vandkvæðum bundið því margir vilja leggja undir sig land þeirra.

Eldfjöll fortíðar
Fyrir 55 milljón árum reif Grænland sig frá Evrópu með slíkum ógnarkrafti að margra kílómetra löng sprunga myndaðist. Eftir mikla eftirgrennslan hefur nú jarðfræðingum tekist að finna út hvaða eldgos voru völd að fjórum aðskildum öskulögum á dönsku eyjunni Fur, og þannig fengið innsýn í hvað gerðist þegar Norður – Atlantshaf varð til.

Smákafbáturinn heldur í undirdjúpin
Rannsóknir á botni úthafanna öðlast brátt nýtt blómaskeið. Nýir mannaðir smákafbátar munu ná til 99% af hafsbotninum og ný gerð kafbáta á að svífa neðansjávar til botns í Marianer – gröfinni.

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Í hvaða máli eru flest orð?
Hvað tungumál er auðugast af orðum? Og hve mörg orð eru í því?