Lifandi Vísindi
 
Prenta
20.09.2006     13. Tölublað 2006 af Lifandi Vísindum komið út
13. tbl. 2006
13. tbl. 2006
Meðal efnis í 13. tölublaði 2006:

Stjörnufræðingar ætla að finna hina fullkomnu plánetu
Herskari sjónauka mun á næstu árum fínkemba geiminn í leitinni að nýjum reikistjörnum. Stjörnufræðinga dreymir um að finna jarðlíka plánetu með vatni, lofthjúp og súrefni og að auki hafa svipaða nágranna og Jörðin.

Stefnumót við styggan risa íshafsins
Náin kynni við rostung eru hættuspil. Þessi mikla skepna getur á örskotsstundu breyst í skelfilegan drápara. Engu að síður tók danski líffræðingurinn Peter Bondo áhættuna ásamt tveimur sænskum ljósmyndurum og truflaði átvarginn við matarborðið á hafsbotni.


Byltingarkennd lyf gegn sykursýki
Sykursýki af gerð 2, eða áunnin sykursýki breiðist nú út eins og eldur í sinu. Sjúkdómurinn er nú jafnvel farinn að leggjast á börn, en þessi gerð sykursýki stafar oftast af ofþyngd eða óhollu líferni. Til allrar hamingju eru nú ný lyf á leiðinni og þau munu geta bætt meðhöndlun sjúksómsins verulega.

Öldum saman hefur Stonehenge vakið bæði undrun og aðdáun
Þegar á miðöldum var þetta mannvirki orðið svo gamalt að uppruni þess var löngu hulinn í fortíðarmóðu og því spruttu upp ótal sögusagnir um tilurð þess. Í augum margra kristinna manna var augljóst að þetta hlyti að vera verk djöfulsins, en aðrir álitu að galdrar stæðu að baki.

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Hvernig lendir flugvél á skipi?
Hvernig ná flugvélar að nema staðar á þilfari flugmóðuskips?