 |
| 16. tbl. 2006 |
Meðal efnis í 16. tölublaði 2006 af Lifandi Vísindum
Jörðin kraumar
Tíðari eldgos og snarpari jarðskjálftar. Þetta geta orðið afleiðingar ójafnvægis í loftslagi jarðar, segir einn af fremstu jarðfræðingum heims. Fyrstu ummerkin eru þegar farin að gera vart við sig.
Skurðlæknarnir fá nanóverkfæri
Bylting á sviði leysstýrðrar nanótækni gerir læknum kleift að vinna með einstakar frumur. Kerfi sem þróað hefur verið í Danmörku klýfur leysigeisla upp í 80 smærri geisla sem hver um sig getur virkað sem framlenging á hendi læknisins.
Krókódílar lifa hálft ár án fæðu
Stóru krókódílarnir í Marafljótinu í Kenýa fasta mestan hluta ársins, en síðan er boðið til veisluborðs sem á sér engan líka, þegar milljónir af sebrahestum, gnýum og gazellum fara yfir fljótið tvisvar sinnum á ári. Fljótið fyllist af dýrum og loksins geta krókódílarnir fengið sér ærlegan kjötbita. Það líður ekki á löngu þar til fyrsti krókódíllinn hefur valið sinn forrétt og læst tönnunum í afturfætur gazellu.
Nú á að fylla lyfjaskápinn með ýmsu góðu úr hafinu
Mikill fjöldi sjávarlífvera ber í sér efni sem nýta má til að þróa ný lyf og vísindamennirnir eru komnir á fulla ferð og fínkemba höfin í leit að dýrum og plöntum sem í framtíðinni gætu læknað hina margvíslegu sjúkdóma.