Lifandi Vísindi
 
Prenta
14.02.2007     2. Tölublað 2007 af Lifandi Vísindum
2. tbl. 2007
2. tbl. 2007
Meðal efnis í 2. tölublaði 2007

Kafbátur með 60 tonn af kvikasilfri ógnar lífi í Norðursjó
Norsk stjórnvöld starfa nú í kappi við tímann að finna lausn áður en miklar birgðir af kvikasilfri, úr kafbátsflaki frá seinni heimstyrjöld, dreifist um sjóinn.

50 ÁR Í GEIMNUM
Þann 4. október 1957 var geimfarinu Spútnik 1 skotið á loft frá eyðimörk í Sovétríkjunum. Þetta var fyrsti manngerði hluturinn sem komst á braut umhverfis jörðina og með honum hófst það geimævintýri mannkyns sem síðan hefur sýnt okkur út í ystu afkima sólkerfisins.

Þannig stöðvum við gróðurhúsaáhrifin:
GEFIÐ JÖRÐINNI SÓLGLERAUGU

Hollenskur Nóbelsverðlaunahafi hefur nýverið lagt til að brennisteinn verði sendur í tonnatali í efsta hluta lofthjúpsins til að draga úr hlýnun jarðar. Þrátt fyrir að hugmyndin sé umdeild hefur hún vakið mikinn áhuga, enda gæti hún komið í veg fyrir hnattrænar hamfarir komi hún til framkvæmda.

Leyndardómur fortíðarinnar
Dularfullu steinkúlur Kosta Ríka
Enginn veit hver bjó þær til né hvers vegna. Alls staðar í Kosta Ríka má koma auga á steinkúlur í ýmsum stærðum, á grasflötum og í húsagörðum, fjarri frumskóginum sem þær fundust í.

Örðugustu gátur stærðfræðinnar
Bandarísk stofnun hefur heitið einni milljón dala í verðlaun fyrir lausn á hverri af sjö helstu gátum stærðfræðinnar. Nú lítur út fyrir að sérvitrum Rússa hafi tekist að leysa eina þá erfiðustu, sem strítt hefur stærðfræðingum í 98 ár.

Litir stýra lífi fuglanna
Fuglarnir sjá í fjórum litum
Augu fuglanna hafa sömu grunnbyggingu og augu manna, en þó með mikilvægri undantekningu. Fuglar búa yfir auka litaskyni sem er að finna í keilum lithimnunnar.

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Af hverju eru svona breið dekk í Formúlu I?
Mjög breið dekk, eins og þau sem notuðu eru í Formúlu I, hljóta að draga úr hámarkshraðanum. En hver er kosturinn?