 |
| 3. tbl. 2007 |
Meðal efnis í 3. tölublaði 2007
Stórborgirnar þenjast út
Í hverri einustu viku fjölgar íbúum stórborga heimsins um meira en eina milljón og á þessu ári verða fleiri sem búa í borgum í heiminum en í sveit. Til að lífvænlegt geti orðið í þessum mauraþúfum manna, vinna skipulagssérfræðingar nú að því að skapa græn svæði, dreifa miðkjörnum og gera borgirnar sjálfbærari.
Gamlir heilar fá nýjar frumur
Hreyfing og andleg áreynsla virkar á heilann eins og kraftmikill áburður. Tilraunir á músum sýna að þær mynda nýjar heilafrumur alla ævi, ef þær aðeins fá nóg úrlausnarverkefni. Uppgötvunin opnar alveg nýja sýn á meðhöndlun varðandi t.d. kölkun og heilablóðfall.
Misskipt er dýranna makaláni
Hjá dýrunum finnast kynhlutverk sem hjónabandsráðgjafa myndi ekki einu sinni dreyma um. Hér er að finna kerlur með karlabúr til karla sem ala önn fyrir ungunum. En útbreiddasta hlutskiptið er að vera einstæður faðir.
Öfgar alheimsins
Geigvænlegar ofurstjörnusprengingar, gammablossar frá fjarlægum stjörnuþokum, ofsafengnar fæðingar stjarna og ótrúlegar afleiðingar árekstra milli stjörnuþoka eða svarthola. Þetta eru dæmi um einhver öfgafyllstu og undraverðustu fyrirbæri alheims.