 |
| 4. tbl. 2007 |
Meðal efnis í 4. tölublaði 2007
Engin getur lesið sögu Páskaeyjar
Páskaeyja er aðeins 171 ferkílómetri að stærð. Eyjan hýsir eitthvert það afskekktasta samfélag sem um getur og á eyjunni er að finna 887 gríðarstórar steinstyttur, sem eru 4 til 6 metrar á hæð, og sem álitið er að hafi verið reistar á árunum milli 1100 og 1750.
Nafli alheimsins
Í 500 ár var Forboðna borgin í Beijing lokuð öllum nema keisaranum, fjölskyldu hans og svo starfsfólki; ástmeyjum og geldingum. Frá þessari harðlokuðu borg stýrði keisari Kína stærsta ríki veraldar með harðri hendi.
Sólkerfið óstýriláta
Stjörnufræðingar leitast við að skipa hnöttum sólkerfisins niður með skilgreiningum á dvergplánetum og plánetum, en það reynist hægara sagt en gert. Fundur á fjölda nýrra himinhnatta flækir verulega flokkun í sólkerfinu.
Öflugustu dropar þróunarinnar
Slöngueitur er mikið skaðræðisvopn, sem hefur þróast og fágast í meira en 100 milljón ár. Þessi banvæni vökvi er lykillinn að árangri slangna sem tegundar, en hefur einnig gert þær viðurstyggilegar og hataðar. Árlega deyja tugþúsundir manna vegna slöngubits. En með afkóðun erfðaefnis ryðja nú fræðimenn brautina að nýju lyfi sem kann að bjarga mun fleiri mannslífum.