 |
| 5. tbl. 2007 |
Meðal efnis í 5. tölublaði 2007
Rækjan kaupir sér vini
Kóralrifin eru vígvöllur þar sem hver einasta lífvera þarf að berjast fyrir lífi sínu. Meðal þeirra sem eru neðstar í fæðukeðjunni eru örsmáar rækjur. Sérhver ránfiskur lítur á þær sem gómsætan bita og til að forðast að enda líf sitt í gini þeirra hafa rækjurnar þróað undravert atferli. Það gengur út á að afla sér vina, treysta tryggðarbönd og rækta vinskapinn.
Gervihjörtu í samkeppni við gjafahjörtu
Gríðarlegur skortur er á gjafahjörtum. Af þeim sökum er fjöldamörgum sjúklingum haldið á lífi með vélrænum hjartadælum meðan beðið er eftir heppilegu hjarta til ígræðslu. En nú eru þessar dælur orðnar svo fullkomnar að menn sjá fram að þær verði raunverulegur valkostur sem veitt geti sjúklingunum bæði langa ævi og mikla orku.
Risaskip loftsins endaði á hafsbotni
Einn stormasaman vetrardag árið 1935 lenti loftskipið USS Macon í snarpri vindhviðu rétt úti fyrir strönd Kaliforníu. Örfáum stundum síðar lá þetta helíumfyllta loftskip, sem var stærst sinnar tegundar í heimi, á hafsbotni og þar er það enn.
Fílarnir ráðast til atlögu
Veiðiþjófar stunduðu fílaveiðar í Afríku í stórum stíl á 8. og 9. áratug 20. aldarinnar. Þetta hefur leitt til þess að vaxið hefur úr grasi heil kynslóð fíla sem minnist ofbeldis og dauða úr æsku sinni og sem vaxið hefur úr grasi án leiðsagnar reyndra, fullorðinna dýra. Afleiðingarnar eru árásargjarnar fílahjarðir.