Lifandi Vísindi
 
Prenta
27.06.2007     8. Tölublað 2007 af Lifandi Vísindum
8. tbl. 2007
8. tbl. 2007
Meðal efnis í 8. tölublaði 2007

Gasboranir hafa skapað óstövandi eðjugíg
Á Java í Indónesíu hafði borun eftir gasi í för með sér ógnvænlegar afleiðingar. Í stað þess að finna gas vall nefnilega aur og leðja upp úr jörðu. Hin nýi eðjugígur hefur þegar kaffært átta þorp og engin lát eru á eðjuflaumnum.

Amerísk dýr ráðast inn í Evrópu
Mikill fjöldi amerískra dýrategunda hefur á síðustu árum náð til Evrópu. Innrásin skapar veruleg vandamál fyrir evrópskar tegundir sem „Ameríkanarnir“ drepa, hrekja á brott eða þrengja búsvæði þeirra með þremur mismunandi aðferðum.

Ný sýn á Jörðina
Nú veita gervihnettir ofurnákvæmar myndir af öllum krókum og kimum hennar, og lærðir sem leikir geta í ró og næði skoðað plánetu okkar með áður óþekktri yfirsýn.
Með aðstoð gagna frá ótal gervihnöttum hefur þýska geimferðastofnunin DLR sett saman fjölda af aðdáunarverðum gervihnattarmyndum af eyjum, fjöllum og jöklum sem veita einstaka sýn á meginlöndin sjö.

Stjörnufræðingar í spæjarahlutverki
Hvarvetna á himinum má finna leifar stjarna eftir ógnvænleg endalok. Víðfeðmar stjörnuþokur eru einu leifar stjarna sem urðu fórnarlömb feikilegra sprenginga. Fram til þessa hafa stjörnufræðingar staðið á gati varðandi orsakir þessara hamfara. En nú hafa nýjar rannsóknaraðferðir með þróuðum tölvuhermum í fyrsta sinn veitt vísbendingar um hver var þar að verki.

Nú sendum við strauminn þráðlaust
Kveðjið rafmagnssnúrur og hinar leiðinlegu endurhleðslur á rafhlöðum. Nú er meira en 100 ára rannsóknir á þráðlausum flutningi orku nefnilega við að veita árangur. Nýjar rannsóknir sýna að það finnst gagnleg leið til að flytja orku gegnum loftið. Þetta er hápunktur þeirrar vinnu sem Nikola Tesla hóf upp úr 1890.

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Af hverju er sumt fólk með mislit augu?
Söngvarinn David Bowie er t.d. með annað augað brúnt en hitt blátt. Hvernig skapast þetta fyrirbrigði?