Lifandi Vísindi
 
Prenta
28.06.2007     9. Tölublað 2007 af Lifandi Vísindum
9. tbl. 2007
9. tbl. 2007
Meðal efnis í 9. tölublaði 2007

Nú heldur tölvan okkur í formi
Við þurfum að hreyfa okkur meira, eigi að hamla gegn offituvandanum og þá getur tölvutæknin komið að góðum notum. Stafrænir leikir framtíðar munu örva börn sem fullorðna til að hreyfa sig meira hversdagslega.

Gróðurhúsaáhrifin eyddu nær öllu lífi
Fyrir hartnær 251 milljón ára varð jörðin fyrir mestu hamförum sem hugsast getur, með þeim afleiðingum að nánast allt líf á jörðu þurrkaðist út. Nýlegar rannsóknir benda til þess að þessi gífurlega tortíming hafi átt rætur að rekja til gróðurhúsaáhrifa sem urðu af náttúrunnar völdum. Vísindamenn óttast að eitthvað áþekkt kunni að endurtaka sig í framtíðinni.

Stóri bróðir dýranna
Nótt sem nýtan dag hafa vísindamennirnir vakandi auga með dýrunum á eyju einni í Panama. Með heilu netverki útvarpsmastra og senda, geta vísindamennirnir nú setið fyrir framan tölvuskjáinn og fylgst með öllu því sem gerist í skóginum.

Draumur landnema endaði í hreinni martröð
Í apríl 1846 leggur stór vagnalest af stað til hinnar sólríku Kaliforníu. En vagnalestin fer áður ókannaða skammleið og innflytjendurnir lenda að lokum í sjálfheldu í fjallaskarði. Hungur, kuldi og ofþreyta kosta mörg mannslíf og hinir síðustu lifa af aðeins vegna hinna sem þegar hafa látið lífið.

Umhverfisverndarsinnar vilja risastíflu burt
Hún er á hæð við 32-hæða byggingu og hefur í meira en áttatíu ár verið mitt í Yosemite-þjóðgarðinum í Kaliforníu, en verður nú að líkindum fjarlægð og náttúran endurheimt. Og saga þessi er ekki einstök. Víðsvegar um heim allan vilja umhverfissinnar stíflur fjarlægðar.

Ný þekking
Myndavél nær þrívíddarmyndum
Köngulær laða að sér maka með ljósi
Smásæ vélhönd hjálpar læknum
Reykfíknin er innan við eyrun
100 milljón ára býfluga umlukin rafi

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Getur meðvindur fleytt manni yfir hljóðhraða?
Farþegaflugvélar komast skjótar á leiðarenda í meðvindi. Getur venjuleg flaug flogið hraðar en jafnvel hljóðið, þegar meðvindur er nægilega sterkur?