 |
| 10. tbl. 2007. |
Meðal efnis í 10. tölublaði 2007
Ruslakarlar náttúrunnar eru ofursérfræðingar
Þeir eru grimmir, lifa í stækju dauða og rotnunar og éta viðurstyggilega hluti sem aðrir myndu veikjast af. En sem betur fer, því án hinna fjölmörgu ruslakarla náttúrunnar væri jörðin fyrir löngu orðin einn allsherjar sorphaugur.
Það er orðið erfiðara að svindla
Þegar íþróttafólk misneytir lyfja hættir það ekki einungis heilsu sinni. Það á líka á hættu að varpa rýrð á verðlaunin, því lyfjapróf eru nú orðin afar örugg.
Morð á Mars
Fyrir 30 árum héldu vísindamennirnir eitt stutt augnablik að Viking-geimförin hefðu uppgötvað líf á Mars. Nú kemur í ljós að þetta gæti einmitt hafa gerst. En því miður drápu tækin þá þetta jafnskjótt og þau fundu það. Gömlu greiningaraðferðirnar gerðu nefnilega ekki ráð fyrir neins konar öðruvísi lífi en við þekkjum.
Búddhistar í skemmtisiglingu
Árlega, við lok regntímans, heldur Inthafólkið í Myanmar stórfenglega helgihátíð sem dregur að fólk nær og fjær. Inthafólkið notar helming allra tekna sinna yfir árið í hátíðina. Þannig heiðra þeir bæði Búddha og anda forfeðranna. Jafnframt skapa þeir sér „griðastað“ mitt í landi sem stjórnað er af herforingjum.
Vindmyllur eiga að vinna á þörungum
Eitraðir blágrænþörungar valda mönnum og sjávardýrum í Eystrasalti miklum vanda yfir sumarið. En samkvæmt fræðimönnum geta vindknúnar dælustöðvar myndað hringrás í sjónum og unnið þannig bug á vandanum á nokkrum árum.
Ný þekking
Geimsjónaukinn Spitzer sýnir framtíð sólarinnar
Vöggudauði stafar af galla í heilanum
Rauðvín er líklega hollara en við héldum
Göng undir Bosporussund á að sameina Istanbúl
Sæfílar mæla hitastigið í hafinu