 |
| 11. tbl. 2007 |
Meðal efnis í 11. tölublaði 2007
Mörgæsir á þunnum ís
Fyrr á tíð mátti víða sjá milljónir mörgæsa í þéttum hópum en nú er víða orðið tómlegt um að litast. Mikill fjöldi mörgæsategunda á í vandræðum og vísindamennirnir reyna að komast að ástæðunum - í hörðu kapphlaupi við tímann.
Brjóstamjólk virkar gegn krabbafrumum
Fræðimenn hafa löngum vitað að brjóstamjólk verndar ungabörn gegn sjúkdómum. Nú hefur mjólkin verið reynd á sjúklingum með góðkynja krabbamein og hefur reynst gagnlegt lyf gegn krabbafrumunum, án þess að skaða heilbrigðan vef.
Við lögðum undir okkur heiminn með ógnarhraða
Bæði erfðarannsóknir og fornleifarannsóknir benda til að allt mannkyn eigi rætur sínar að rekja til örfárra þúsunda manna sem lifðu í Austur-Afríku fyrir um 75.000 árum.
Geimfarar berjast við sálræna erfiðleika
Köld yfirsýn skiptir sköpum úti í geimnum. Því þurfa allir geimfarar að gangast undir gagnger sálræn próf áður en þeir halda í geimferð. Engu að síður hafa margir þeirra farið á límingunum í áranna rás.
Ein mynd segir meira en þúsund tölur
Með auknu upplýsingastreymi er hætt við að inntakið drukkni í magninu. En þegar fræðimenn umbreyta gögnum í myndir kemur merkingin aftur fram.
Ný þekking
Geimsjónauki finnur goshveri á sólinni
Ný lyf geta hjálpað astmasjúklingum
Heimsins fyrsta vetnisflugvél hefur sig á loft
Greind börn verða grænmetisætur
Afrískur fjallgarður svignar undan tegundum í útrýmingarhættu