Lifandi Vísindi
 
Prenta
06.09.2007     12. tölublaði 2007 af Lifandi Vísindum
12. tbl. 2007
12. tbl. 2007
Meðal efnis í 12. tölublaði 2007

Vísindasamfélagið heldur á kaldan klaka
Alþjóðlega heimskautaárið er í fullum gangi. Um þessar mundir halda þúsundir vísindamanna víðsvegar að með rannsóknartól sín út á hinar djúpfrosnu víðáttur við skaut heimsins í leit að spennandi rannsóknarniðurstöðum. Ætlunin er að finna nýja þekkingu um hvaðeina frá risaeðlunum til veðurfars framtíðar, og frá smádýrum undir hafísnum til fjarlægustu stjörnuþoka.

Rannsóknarstöð siglir í gegnum ísmassa
Þýska rannsóknarskipið Polar Stern er rannsóknarstofa fyrir þúsundir fræðimanna. Allt árið siglir það í ísköldum sjónum við heimskautin.

Heimskautahöfin eru matarbúr alls heimsins
Dýr heimskautanna berjast við erfið lífskilyrði. Íshöfin tvö eiga það þó sameiginlegt að sjórinn er hér næringarríkari en annars staðar á hnettinum og því úir allt og grúir af lífi.

Heimskautanótt veitir fullkomna sýn
Á Suðurskautinu eru langar dimmar nætur með heiðum himni og litlum loftraka. Þetta eru kjöraðstæður fyrir stjörnurannsóknir.

Inúítar hafa innri hita
Heimskautasvæðin ættu að vera lokuð manneskjum. Engu að síður blómstra norðlægustu íbúar heimsins við þessar aðstæður. Eitt leyndarmálanna eru fitusýrurnar í mataræði þeirra sem gefa bæði heila og líkama orkuinnspýtingu.

Suðurskautslandið var eitt sinn grænt
Heimskautasvæðin hafa alls ekki alltaf verið ísi þakin. Reyndar hafa þau verið þakin skógi megnið af síðustu 500 milljón árunum. Fyrir 100 milljón árum var t.d. grænt og gróskumikið gróðurlendi þar sem forneðlur lifðu í vellystingum.

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Hvaða geimfar er lengst frá jörðu?
Mörg hundruð geimförum og gervihnöttum af öllum mögulegum gerðum hefur verið skotið út í geiminn. En hvaða geimfar hefur náð lengst frá jörðu?