Lifandi Vísindi
 
Prenta
31.12.2007     13. Tölublað 2007 af Lifandi Vísindum
13. tbl. 2007
13. tbl. 2007
Meðal efnis í 13. tölublaði 2007

Ný verkefni ná í innri hita jarðar
Við Íslendingar höfum gengið vel að nýta okkur jarðhitann undir okkur. En nú ætla bæði Bandaríkin og Evrópa að feta í fótspor okkar. Möguleikarnir eru miklir og ný tækni veitir okkur auðveldari aðgang að auðlindinni.

Spretthlaupari á vonarvöl
Blettatígurinn er stórfenglegt veiðidýr sem getur þeyst af stað yfir gresjuna á meira en 100 km/klst. En hraðasta landdýr heims á undir högg að sækja vegna innræktunar, magasára, veirusjúkdóma, sníkla, lélegra gæða á sæðinu - og æfum bóndum. Í Namibíu veita dýralæknar og líffræðingar blettatígrum neyðaraðstoð, og hún virkar.

Flottari myndir á flatari skjái
Sjónvörp framtíðar munu byggja á lýsandi plastefni eða rafeindabyssum í formi nanóröra. Það leiðir til millimetra þunnra risaskjáa með undraverðum myndgæðum. Frumgerðirnar eru þegar í deiglunni

Ný skönnun sýnir greinilega heilavirkni hjá dásjúklingum
Athyglisverðar tilraunir sýna nú að stór hluti sjúklinga sem liggja í dái, eru hreint ekki "heilalaust grænmeti", heldur geta þeir skilið setningar og leyst úr þrautum. Niðurstöðurnar vekja vonir um að læknar geti náð til þessara sjúklinga og haft tjáskipti við þá.

Föstudagurinn 13 apríl 2029
Lofsteinninn Aphophis fer mjög nálægt jörðu. Ef við erum óheppinn þá breytist braut hans það mikið að hann skellur á Jörðinni sjö árum seinna

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Hve hratt fara taugaboð?
Taugakerfi mannsins notast við rafboð. Hraði þeirra ræðst af gildleika taugatrefjanna ásamt því hvort taugin er klædd í fituslíður. Allt eftir þessu getur hraðinn verið 0,5 - 100 metrar á sekúndu.