 |
| 14. tbl. 2007 |
Meðal efnis í 14. tölublaði 2007
Kóralrifin koma á óvart
Niðurstöður rannsókna á einu af allra síðustu, ósnortnu og heilbrigðu kóralrifjum heims, hafa komið vísindamönnum á óvart. Miðað við önnur vistkerfi hefur fæðupýramídanum hér verið snúið á haus. Rándýrin eru fleiri en veiðidýrin.
Hannibal tefldi á tæpasta vað
Eftir 14 ára rannsóknarstarf hefur fornleifafræðingum nú tekist að skrásetja þá leið sem Hannibal valdi yfir Alpana árið 218 f. Kr. Þessi víðfrægi hershöfðingi frá Karþagó valdi torsótta leið í herleiðangri sínum gegn Róm. Til að framkvæma heimsins mestu skyndiárás leiddi hann her sinn yfir tæplega 2.500 m háan fjallveg.
Fitukúr margfaldar þyngdina
Umhyggja er lykillinn að velgengni þess að ala upp pöndur. Við fæðingur vegur panda um 125 grömm en getur orðið 45 kíló.
Grafa á að leita að lífi á rauðu plánetunni
Á vori komanda lendir kanninn Phoenix við skaut rauðu plánetunnar. Með vélknúinn gervigreindararm á hann að grafa djúpt niður í jörðina, til að leita uppi gríðarlegt magn af ís sem talið er að finnist þar. Vonast er til að ísinn sé búsvæði lifandi örveira.
Nú fáum við að sjá inn í dulda bernsku alheims
Fram til þessa hefur mikilvægur kafli í sögu alheims verið óþekktur. Tímaskeið er nemur næstum milljarði ára frá bernsku alheims er nefnilega ósýnilegt, því þá var ekki til ljós sem við getum séð í dag. Vetnisgös alheims gáfu þó frá sér daufa glóð, sem útvarpssjónaukar eiga nú að fanga.