Lifandi Vísindi
 
Prenta
01.01.2008     15. Tölublað 2007 af Lifandi Vísindum
15. tbl. 2007
15. tbl. 2007
Meðal efnis í 15. tölublaði 2007

LHC á að leysa stærstu leyndardóma eðlisfræðinnar
Tíminn er kominn: Í maí verður stærsti hraðall heims, LHC, settur í gang hjá CERN. Þessi risahraðall á að líkja eftir Miklahvelli 800 sinnum á sekúndu og töfra fram framandlegar efniseindir sem mikilvægasta kenning eðlisfræðinganna spáir fyrir um.

Erfðavísarnir stjórnast af duldum kröftum
Við erum vön því að álíta að erfðalykillinn stjórni líffræðilegum örlögum okkar. Erfðalykillinn ræður því hins vegar ekki einn hvaða eiginleikum við búum yfir og hverja við munum arfleiða afkomendur okkar að. Mikilvæg líkamsstarfsemi utan erfðamengisins sér til þess að opna og loka á erfðavísana.

Vísindamenn framleiða gervisáðfrumur
Unnt er að breyta stofnfrumum úr beinmerg í mennskar sáðfrumur og slíkar frumur geta frjóvgað egg músa þannig að til verða músaungar. Þessi nýja uppgötvun gefur barnlausu fólki nýja von.

Einkafyrirtæki breiða úr sér á stjörnuhimninum
Fyrsta prufueiningin var send á loft með góðum árangri á síðasta ári. Í ár fylgir önnur. Og innan næsta áratugar munum við sjá heila geimstöð taka á sig form - ef allt fer eftir áætlun hjá einkafyrirtækinu Bigelow Aerospace.

Ár höfrungsins á að bjarga 29 tegundum
Eitt eiga nær allar höfrungategundir því miður sameiginlegt: Þær eru allar meira eða minna í útrýmingarhættu. Ástandið er svo alvarlegt að SÞ hafa útnefnt árið 2007 sem alþjóðlegt höfrungaár.

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Breytir blóðgjöfn DNA-myndinni?
DNA-greining er oft gerð á blóðsýnum. Gæti stór blóðgjöf breytt þeirri DNA-mynd sem þannig fæst?