 |
| 17. tbl. 2007 |
Meðal efnis í 17. tölublaði 2007
Á sýndarferð um líkamann
Nú á dögum er háþróuð tækni ekki einungis fær um að mynda líkamann að utan sem innan, heldur getur hún einnig skapað frábærar þrívíddarmyndir af öllum líffærum, æðum og beinum.
Myndir segja til um loftslagsbreytingar
Eigi að vera hægt að spá fyrir um veður framtíðarinnar er nauðsynlegt að vita hvernig veðrið var áður fyrr. Loftslagsfræðingar rannsaka yfirleitt ískjarna og árhringi en nú hafa bæst við ýmsar aðrar heimildir um árferði í gamla daga en með þessu er átt við gamlar myndir, dagbækur og skráðar athugasemdir um plöntulíf.
Bólusetning gegn blóðtappa
Uppsöfnun kólesteróls í æðunum er ein helsta ástæða hjarta- og æðasjúkdóma. Vísindamenn hefur lengi dreymt um að geta komið í veg fyrir myndun kólesterólsins. Þessa dagana eru í bígerð þrenns konar bólusetningar, sem allar lofa góðu.
Veðurspá frá sólinni
Nýjar myndir af sólinni eiga að gera mönnum kleift að vinna áreiðanlegri spár um geimveðrið, þannig að aftur megi senda fólk langt út í geiminn, til tunglsins og jafnvel alla leið til Mars. Fyrr en slíkar spár koma til sögunnar geta geimfarar ekki fundið til neins öryggis. Þeir eiga hvenær sem er á hættu að verða fyrir mikilli geislun frá einhverju hinna dularfullu sólgosa.