Lifandi Vísindi
 
Prenta
13.07.2008     1. Tölublað 2008 af Lifandi Vísindum
1. tbl. 2008
1. tbl. 2008
Meðal efnis í 1. tölublaði 2008

Þekking gegn trú
Í margar aldir börðust kristindómur og vísindi um hina sönnu heimsmynd, þar til trú og þekking urðu að lokum aðskilin hugtök. Þetta þurfti til að öðlast betri þekkingu á heiminum, en nú leitast sterk öfl í BNA aftur við að hræra upp í hlutunum með hugmyndinni um að náttúran sé undirlögð af svonefndu „intelligent design“. Staðhæfingin er bæði trúarleg árás á þróunarkenninguna og grundvallarlögmál vísindanna.

Síðasti bardagi stórmógúlsins
Árið 1526 hófst stórveldi mógúlanna í því sem nú heitir Indland. Næstu tvær aldirnar á eftir var mikil velmegun í ríkinu og mógúlarnir lifðu í vellystingum í ópíumvímu, umkringdir konum og óheyrilegu ríkidæmi. En svo tók ævintýrið enda: Eftir margra ára tilraunir tóku Bretar loks yfirráðin í stórveldinu árið 1858 og losuðu sig þá við síðasta mógúlinn.

Rusl ógnar geimferðum
Geimurinn fyrir utan lofthjúp jarðar er fullur af drasli eftir 50 ár með þúsundum af margs konar geimskotum. Vísindamenn reyna að fylgjast náið með ruslinu til að tryggja búnað sinn í geimnum. En ruslið er farið að móta sig og hreinsa þarf geiminn.

Eldgosið sem breytti sögunni
Á bronsöld varð eitt öflugasta sprengigos sögunnar á grísku eyjunni Santorini. Hingað til hafa vísindamennirnir álitið að gosið hafi orðið fyrir 3.500 árum. Nú sýna nýjar rannsóknir að þetta gerðist heilli öld fyrr og sögu Miðjarðarhafsins þarf því að skrifa upp á nýtt.

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Hvers vegna fær maður lag á heilann?
Það gerist iðulega að eitthvert tiltekið lag sest fast í huga mér og ég losna ekki við það. Hvað gerist eiginlega í heilanum sem veldur þessu?