 |
| 3. tbl. 2008 |
Meðal efnis í 3. tölublaði 2008
Hinn langi armur laganna verður 100 ára
FBI er fremsta löggæsla í heimi. Hinir harðsnúnu liðsmenn FBI hafa í 100 ár barist ótrauðir gegn verstu glæpamönnum allra tíma, allt frá Al Capone til Bin Laden. Lifandi vísindi hafa heimsótt stofnunina og fengið einstaka innsýn í langa og litríka sögu hennar.
Velkomin í neðanjarðarríki hinna dauðu
Í undirgöngum undir klaustri hettumunkanna á Sikiley er sannkallað ríki dauðra. Hér eru 8.000 múmíur klæddar sínu fínasta skarti. Frá því í lok 16. aldar og fram til 1920, jarðsettu betri borgarar á Sikiley sína nánustu í katakombunum.
Síðasta útkall fyrir gaupuna
Þetta er allra síðasta tækifærið. Veiðar, ræktun lands, vegir og veirusýkingar hafa á 100 árum bitnað svo harkalega á spænsku gaupunni að hún er nú sjaldgæfasta kattardýr heims og það spendýr í Evrópu sem er í mestri útrýmingarhættu
Græn innrás
Syðsta eyja Íslands, Surtsey, reis úr sæ fyrir aðeins 45 árum. Eyjan var líflaus í mörg ár, en eftir að flokkur máva kom þangað hafa plöntur og dýr náð fótfestu á mettíma á þessari hrjóstrugu eldfjallaeyju.
Nú náum við í hreina orku á tunglinu
Eftir um 50 ár gæti orkuvandamál heimsins leyst. Á tunglinu liggur kjörið samrunaeldsneyti framtíðarinnar, sem sé mikið magn af helíum-3.