 |
| 5. tbl. 2008 |
Meðal efnis í 5. tölublaði 2008
Gullöld marglyttnanna
Breiður af skvapkenndum marglyttum hafa síðustu árin þakið strendur Miðjarðarhafs. Annars staðar eyðileggur gríðarleg marglyttumergð veiðarfæri, stíflar aðleiðslu kælivatns fyrir orkuver eða drepur þúsundir fiska í laxarækt. Marglyttur eru taldar þriðjungur dýralífs í hafinu – og þetta geta þær þakkað okkur mönnunum.
Príónur - bæði skúrkar og hetjur
Þessi sérstöku prótín, nefnd príónur, vekja ótta því þau orsaka hinn banvæna heilasjúkdóm Creutzfeldt-Jakob. En nú sýnir rannsókn að príónur vernda einnig gegn Alzheimer.
Framtíðarrafmagnið verður sætt og vistvænt
Rafhlöður sem byggjast á sykurbrotsensímum eru nú á næsta leiti. Þær verða bæði afkastamiklar og afar umhverfisvænar því öll úrgangsefni brotna niður í náttúrunni.
Vagga Bandaríkjanna drifin blóði
Jamestown var fyrsta varanlega nýlenda Breta í Norður-Ameríku og nýi heimurinn átti eftir að reynast landnemunum hin mesta þrekraun. Uppgröftur síðustu ára hefur leitt í ljós að það voru sultur, sjúkdómar og fjandsamlegir indíánar sem knésettu forvígismenn Bretanna.
Simpansar eiga talmál
Vísindamenn hafa til þessa ekki talið að hljóð simpansa hefðu að geyma neinn markvissan boðskap. Þetta segir hópur vísindamanna nú vera misskilning en þessi sami hópur hefur stundað rannsóknir á samskiptum apanna með nýjustu tækni.