Lifandi Vísindi
 
Prenta
21.07.2008     6. Tölublað 2008 af Lifandi Vísindum
6. tbl. 2008
6. tbl. 2008
Meðal efnis í 6. tölublaði 2008

Í návígi við risaeðlur
Fjöldi nýrra funda sem og tækniframfarir hafa á síðustu árum valdið sprengingu í þekkingu á lífi risaeðlanna. Ekki aðeins hefur komið fram fjöldi nýrra tegunda, heldur hafa einnig fundist húð og vöðvar. Ásamt nýjum verkfærum eins og skönnum og árhringjagreiningum verður þekking okkur mun nákvæmari.

Laxar eignast urriðaseiði
Japanskir vísindamenn hafa með genabótum fengið ófrjóa laxa til að þróa urriðasæði og -egg sem veita lífseiga urriða. Tæknin gæti orðið til að bjarga sjaldgæfum fiskum.

Þvert gegnum Evrópu á yfir 400 km hraða - Lestir á flughraða
Þegar endurbætt útgáfa frönsku TGV-háhraðalestanna náði 574,8 km hraða á síðasta ári og setti þar með nýtt heimsmet, kom um leið í ljós, hvers evrópskir ferðamenn mega vænta í framtíðinni.

Bólusetning verndar plöntur gegn sjúkdómum
Manneskjur og húsdýr eru bólusett til að fyrirbyggja sjúkdóma og nú er röðin einnig komin að plöntum. Í stað þess að berjast gegn örverunum með eiturúðun, sem getur verið skaðleg umhverfinu og þeim dýrum og mönnum sem síðar eta plönturnar, verður eigið ónæmiskerfi plantnanna virkjað svo þær verji sig sjálfar með náttúrulegum hætti.

Jörðin er menguð af birtu
Dýrin eru ekki lengur fær um að rata. Stjörnufræðingar koma ekki lengur auga á stjörnurnar. Og við hin eigum á hættu að fá andlega og líkamlega kvilla. Ljósmengun er vaxandi vandamál um gjörvallan heim.

Ótrúleg niðurstaða úr heilarannsókn!
Þegar minnið bregst er það ekki vegna þess að eitthvað er að því. Minnið er nefnilega ekki hannað til að gefa rétta mynd af fortíðinni heldur þvert á móti til að sjá framtíðina.

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Hvað eru stírur í augunum?
Þau gulleitu korn sem greina má í augnkrókunum á morgnana eru einfaldlega úrgangur, m.a. dauðar frumur og óhreinindi. Í vöku skolast þetta burtu jafnóðum en í svefni ýta augnhreyfingar óhreinindunum til hliðar.