Lifandi Vísindi
 
Prenta
11.01.2006     2. Tölublað 2006 af Lifandi Vísindum komið út
2. tbl. 2006
2. tbl. 2006
Meðal efnis í 2. tölublaði 2006:

Furðuform stjörnuþoka
Kattaraugað, Þrísólna – plánetan og Myrka stjörnuþokan eru fáein dæmi um þau framandi fyrirbæri sem hafa valdið stjörnufræðingum heilabrotum. Vegna betri stjörnusjónauka er nú upprunnin gullöld stjörnufræðinga sem afhjúpa hvern leyndardóminn á fætur öðrum

Stærðfræði á að brjóta kóðann
Runa af dulkóðuðum boðskap og gleymdum tungumálum hefur í aldaraðir staðist ágang manna. Nú nýta vísindamenn öflug vopn stærðfræðinnar gegn þvermóðskufullum kóðunum – enn er samt þörf á þolinmæði og getgátum.

NÝ TILGÁTA
Þess vegna getum við aðeins verið á einum stað

Ljóseindir geta verið á mörgum stöðum á sama tíma. Einnig atóm. Já, jafnvel sameindir geta það líka. En stórir hlutir eins og manneskjur eru ófærir um slíkar kúnstir. Ný kenning segir frá af hverju.

Fædd fyrir tímann
Framfarir í læknavísindum hafa leitt til þess að hægt er að bjarga lífi margra barna sem fæðast fyrir tímann. Fyrir 20 árum lifði aðeins eitt barn af hverjum tuttugu, ef þau voru minna en 1000 g við fæðingu. Í dag lifa 14 af hverjum 20. En samtímis sýna glænýjar rannsóknir að mörg þeirra þurfa að lifa við alvarlega fötlun.

Hamfarir lama afkastagetu okkar
Nýjar rannsóknir sýna hvernig við bregðumst við við erfiðar aðstæður. Á óvart kemur að fáir missa stjórn á sér og jafn fáir bregðast við á yfiregaðan hátt. Flestir verða hálflamaðir og nánast hálffreðnir eða far að haga sér undarlega.

Líffræðingar elta stærsta fisk heims
Hvalháfurinn er á stærð við strætisvagn en þó vita vísindamennirnir nánast ekki neitt um hann. Þessu á nú að breyta. Sjávarlíffræðingar eru nú byrjaðir að merkja stærstu fiska sem synda um heimshöfin í Tadjouraflóa undan strönd Djibúti á mörkum Rauðahafs og Indlandshafs.

Skoðaðu 2. tbl. 2006

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Hvers vegna teiknuðu Egyptar alltaf fólk frá hlið?
Á tímum faraóanna fylgdi egypsk list föstum reglum og líkaminn var alltaf sýndur þannig að allir útlimir sæjust eins greinilega og hægt var. Egyptar teiknuðu andlit, handleggi og fætur í prófíl, meðan bolurinn og augu voru jafnan teiknuð framan frá. Með þessum hætti gat teiknarinn sýnt mest af allri fyrirmyndinni. Þetta var í reynd hugmyndin að baki teikningum og lágmyndum, sem er einkum að finna í gröfum hinnar egypsku yfirstéttar. Hugmyndin var að teikningar kæmu í stað þræla, sem áður voru drepnir til að þjóna herrum sínum í dauðaríkinu. Dýr voru einnig teiknuð í prófíl enda mátti þannig sýna hreyfingar þeirra sem best.