 |
| 8. tbl. 2008 |
Meðal efnis í 8. tölublaði 2008
Ný tækni veitir stjörnufræðingum myndir af beinagrind alheimsins
Án þyngdaraflsins frá hulduefninu dularfulla myndu allar stjörnur og stjörnuþokur þeytast í sundur. Samkvæmt útreikningum er meira en fimm sinnum meira af hulduefni en hinu sýnilega í alheiminum. Við getum ekki séð það og vitum ekki hvað það er, en með nýrri tækni er mögulegt að búa til þrívíddarkort yfir dreifingu þess.
Ísinn á Suðurskautinu bráðnar neðan frá
Vísindamenn á Suðurskautinu fylgjast með hreyfingum íssins á yfirborðinu- og nú vita þeir ástæðuna. Hin kílómetra þykka íshella liggur á risastóru votlendi.
Nýr fundur staðfestir samskipti Norðursins við Róm
Verðmætir skrautmunir í gröfum frá járnöld sýna að norrænir höfðingjar höfðu náin tengsl við Rómarveldi.
Læknar læra af tölvuspilum
Þúsundir dóu og bæir lögðust í eyði þegar sjúkdómurinn „spillt blóð“ geisaði. Þrátt fyrir að faraldur þessi hafi átt sér stað í tölvuleiknum World of Warcraft, nýta læknar sér reynsluna til að berjast gegn sjúkdómum eins og SARS og fuglaflensu.
Nær leyndardómum álsins
Víða í Evrópu er villtur áll í mikilli útrýmingarhættu. Björgun gæti þó verið í augsýn. Dönskum vísindamönnum hefur nefnilega tekist að ala upp álaseiði. Svo er nýju fóðri fyrir mæðurnar fyrir að þakka.