 |
| 9. tbl. 2008 |
Meðal efnis í 9. tölublaði 2008
Erfðafræðilega byltingin
Genatæknin verður nú fyrir alvöru í hvers manns eigu. Fyrir tæplega 1.000 dali getum við nú fengið persónulega greiningu, sem afhjúpar sérstaka erfðafræðilega drætti okkar. Og fyrstu manneskjur hafa nú þegar fengið kortlagningu á öllum genum sínum enda á milli. Læknisfræðilegir möguleikar framundan eru gríðarlegir.
Bernskan kvödd
Um heim allan hefur það mikla þýðingu að komast í tölu fullorðinna. Í öllum siðmenningum og öllum trúarbrögðum er að finna athafnir til að fagna áfanganum – sumar fullar af glaðværð og skemmtan, meðan aðrar eru hátíðarfullar og alvörugefnar. Sænski ljósmyndarinn Anders Ryman hefur ferðast til allra afkima heims og með stórkostlegum myndum skrásett þau heillandi augnablik þar sem manneskja tekur undir sig stökkið og kveður barndóminn.
Stofnfrumur munu lækna sykursýki
Þótt sjúklingar með sykursýki 1 sprauti sig með insúlíni, nær það ekki að halda blóðsykurjafnvægi nægilega stöðugu. Á löngum tíma getur þetta valdið alvarlegum heilsubresti og þess vegna vilja vísindamennirnir finna nýja lækningu. Nýjar stofnfrumutilraunir lofa góðu.
Vatnstankar í Argentínu eiga að fanga villtustu eindir heims
Annað veifið skellur geimgeislun á jörðinni á svo ótrúlegum hraða að örsmáar efniseindir geta búið yfir ámóta orku og tennisbolti eftir öflugasta uppgjafarslag. Nú sýna fyrstu greiningar frá nýrri, stórri athugunarstöð í Argentínu að efniseindirnar kynnu að berast frá stórum svartholum.
Faðir stærðfræðinnar kemur vísindamönnum á óvart
Faldar jöfnur í gamalli bænabók sýna snilligáfu Arkímedesar
Fjöllistamenn náttúrunnar
Frumstæðu pokadýrin gefast aldrei upp