 |
| 12. tbl. 2008 |
Meðal efnis í 12. tölublaði 2008
Við hönnum framtið okkar sjálf
Maðurinn er í raun hannaður fyrir líf, eins og við lifðum því fyrir 10.000 árum, sem veiðimenn og safnarar. Þegar við hófum landbúnað og fluttum þétt saman í bæi og borgir, fylgdi líkaminn og heilinn ekki alveg með í þróuninni. En nýjasta tækni gerir okkur kleift að endurnýja hina úrletu útgáfu 1.0. Það lítur út fyrir að framtíðarmaðurinn, útgáfa 2.0, geti þróast á fimm vegu.
Læknar framleiða börn á tilraunastofum
Frjósemistækni, fósturskimun, genatækni og einræktun, gera það að verkum að við munum geta valið hvaða eiginleikum börnin okkar eiga að búa yfir.
Tæknin hraðar þróuninni
Tækniþróunin hefur gjörbreytt lífsskilyrðum okkar og ætla mætti að við séum orðin svo dugleg við að móta náttúruna að vægi þróunar sé æði skert. En nýjar rannsóknir sýna hið gagnstæða: Þróunin er hraðari!
Pillur halda okkur í fínu formi
Hillur apótekanna svigna undan pillum sem eiga að gagnast okkur gegn andlegum kvillum, svefnleysi eða slælegu minni. Mörg þessara lyfja eru hins vegar notuð af fólki sem ekki þjáist af sjúkdómum en langar til að vera í góðu andlegu ásigkomulagi alla daga
Við stelum því besta frá dýrunum
Vísindamenn reyna nú að komast að leyndamálum dýra, sem gefa mörgum þeirra einstaka hæfileika. T.d. getur bessadýrið fallið í dvala og lifað af miklar hitasveiflur.