Lifandi Vísindi
 
Prenta
17.11.2008     13. Tölublað 2008 af Lifandi Vísindum
13. tbl. 2008
13. tbl. 2008
Meðal efnis í 13. tölublaði 2008

Líf á fjarlægum reikistjörnum
Vísindamenn hafa fundið hundruði reikistjarna í framandi sólkerfum. Fjögur viðmið fyrir því hvort líf gæti leynst á reikistjörnum hafa verið sett fram og nú geta vísindamenn brátt gengið úr skugga um hvort fjarlægir hnettir uppfylla öll þessi skilyrði. Þar með hefst leit að lífi úti í himingeimnum fyrir alvöru.

Egyptar voru upphafsmenn lækninga
Nýjustu rannsóknir hafa leitt í ljós að læknisfræði Egypta var vísindalegri og gagnlegri en áður hafði verið talið. Sum fornegypsk lyf innihéldu efni sem notuð eru í lyfjaiðnaði enn þann dag í dag.

Umber návist keppinauta
Árum saman hafa vísindamennirnir vaktað hópa fjallagórilla í Úganda. Bæði þessar athuganir og aðrar, birta okkur nú mun fjölbreyttari mynd af stærstu öpum heims. Górillur eru t.d. ekkert mjög matvandar og virðingarstiginn ekki í jafn föstum skorðum og vísindamennirnir hafa talið fram að þessu.

25 ára stríð gegn HIV
25 árum eftir að HIV-veiran greindist sem orsök alnæmis lifa fleiri smitaðir í heiminum en nokkru sinni fyrr. Enn er ekki að finna neina lækningu gegn alnæmi, en tilraunir með fjölmörg lyf sem ráðast á veiruna með nýjum hætti veita vonir um árangursríkari meðferðir.

Kjötætuplöntur stunda þróaðar veiðar
Franskir vísindamenn hafa uppgötvað nýja veiðitækni hjá könnuberum. Vökvinn í botni könnunar er hannaður til að halda smádýrum föstum og hindra flótta þeirra.

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Þarf útþensla alheimsins orku?
Samkvæmt lögmálum eðlisfræðinnar getur orka hvorki orðið til né horfið, heldur aðeins breyst í annað form. Hvernig stendur þá á því að alheimurinn skuli enn þenjast út? Til þess hlýtur að þurfa mikla orku.