 |
| 2. tbl. 2009 |
Meðal efnis í 2. tölublaði 2009
Frumbyggjar öðlast ný réttindi
Eftir 20 ára samningsumleitanir samþykktu Sameinuðu þjóðirnar Réttindayfirlýsingu frumbyggja í september á síðasta ári. Núna, aðeins einu ári seinna, hefur yfirlýsingin þegar haft gagnger áhrif.
Fjársjóðakista fljóts í Slóveníu opnuð
Síðustu 10 árin hafa slóvenskir fornleifafræðingar reglubundið kafað á ákveðnu svæði í Ljubljanica-fljóti til að öðlast yfirsýn yfir þá fjársjóði sem liggja grafnir í leirnum á botninum. Meira en 15.000 gripir hafa komið upp á yfirborðið, sumir meira en 9.000 ára gamlir.
Nýr gervihnöttur kortleggur þyngdarsvið jarðar
Hið nýja flaggskip ESA, GOCE-gervihnötturinn, mun kortleggja þyngdarsvið jarðar með afar mikilli nákvæmni. Mælingarnar munu veita samanburð á hæð á öllum meginlöndum og veita betri forspár um hvernig hafstraumar munu breytast í hlýnandi heimi.
Nefúði getur kennt okkur að treysta
Hormónið oxýtosín skiptir okkur miklu máli ef við eigum að geta treyst öðru fólki. Nýlegar tilraunir hafa leitt í ljós að efnið gerir okkur síður smeyk við að verða svikin. Traust virðist jafnframt skipta sköpum fyrir blómlegan þjóðfélagsefnahag.
Dýrin segja okkur þróunarsögu augans
Frá ljósnæmum frumum ánamaðka yfir í risaaugu smokkfisks. Með því að rannsaka sjónskynjun mismunandi núlifandi dýra geta líffræðingar kortlagt hina 600 milljón ára þróunarsögu augans.