 |
| 3. tbl. 2009 |
Meðal efnis í 3. tölublaði 2009
Myndrænt
Fiðrildi hafa náð ótrúlegri útbreiðslu um allan heim og telja um 180.000 ólíkar tegundir. Sum eru einfarar en önnur fara um í hópum. Sum eru eitruð en önnur stunda litríkar sjónhverfingar.
Lífshlaup fiðrilda er rannsókn á umbreytingu og öll eiga fiðrildin sameiginlegt að aðlaga sig að erfiðustu aðstæðum og lifa við stöðugar breytingar.
Risastjarna skapaði sólkerfið
Nýjar rannsóknir á tveimur gerðum loftsteina frá bernskudögum sólkerfis okkar, sem síðan hafa fallið til jarðar, hafa komið vísindamönnum á óvart. Rannsóknirnar sýna nefnilega að það var ekki sprengistjarna sem olli upphafinu að myndun sólkerfisins, eins og menn hafa talið. Þetta ferli hófst miklu fyrr.
Lýðræðið dró menn að sjóræningjaskupum
Nýjar sagnfræðirannsóknir sýna að sjómenn á 17. og 18. öld völdu frekar að gerast sjóræningjar því þar réðu mannúðlegri og lýðræðislegri stjórnarhættir en í viðskiptaflotanum.
Darwin hugsaði bannaðar hugsanir
,,I think” skrifaði Darwin yfir teikningu, sem sýnir skissu af þróunartré dúrategunda. En hann var verulega áhyggjufullur yfir þessum djörfu hugsunum. Darwin vissi að þróunarkenning hans myndi ógna sköpunarkenningu kristninnar og þar með myndi hún kollvarpa lífssýn konu hans.