 |
| 4. tbl. 2009 |
Meðal efnis í 4. tölublaði 2009
Persar fá uppreisn æru
Grimmir og úrkynjaðir. Þetta var viðtekið álit á Persum til forna og skyldi engan undra, því mestöll vitneskjan á rætur að rekja til erfðafjenda þeirra, Grikkja. Nú eru sagnfræðingar hins vegar byrjaðir að svipta hulunni af þessum pólitíska áróðri og í ljós kemur allt öðruvísi þjóð, sem lagði grunninn að fyrsta heimsveldi veraldar fyrir 2.500 árum.
Bólusetning gegn banvænum niðurgangi
Niðurgangur dregur milljónir manna til dauða ár hvert í fátæku löndunum og í mörgum tilvikum stafar sjúkdómurinn af svonefndri rótaveiru. Nýlegar rannsóknir hafa leitt í ljós að hægt er að bólusetja gegn sjúkdóminum í þróunarlöndunum og að slík bólusetning gæti þyrmt lífi u.þ.b. 400.000 barna árlega.
Hvað er innan í jörðinni?
Um aldaraðir hafa vísindamenn hugleitt hvað sé innan í jörðinni. Tæknileg séð hefur verið mjög erfitt að rannsaka það og því hefur ímyndunaraflið farið á flug. Það er ekki nema á síðustu 100 árum sem vísindin hafa getað svarað einhverjum spurningum en mörgum spurningum er enn ósvarað.
Tungumálið sem enginn vísindamaður skilur
Indíánamálið pirahã virðist ekki líkjast nokkru öðru tungumáli í heimi. Málið er talað af nokkur hundruð manns í Amasónhéraði í Brasilíu og málvísindamenn eru furður lostnir, því pirahã brýtur í bága við allar almennar hugmyndir um tungumál.