Lifandi Vísindi
 
Prenta
14.05.2009     5. Tölublað 2009 af Lifandi Vísindum
5. tbl. 2009
5. tbl. 2009
Meðal efnis í 5. tölublaði 2009

Og veðrið næstu 32 daga
Nýjungin sem hefur verið svo lengi rétt handan við hornið er nú loksins orðin að veruleika: Veðurspá heilan mánuð fram í tímann. Spárnar sem liggja til grundvallar eru alls 51 og hver annarri óháðar. Merkilegast kann þó að virðast að hinn sameinaði styrkur liggur einmitt í að spárnar byggjast á útreikningum sem eru fullir af villum.

Úr hverju er allt búið til?
Fyrir 2400 árum kom upp sú hugmynd að allt væri byggt á örsmáum, óskiptanlegum eindum. Nú nota vísindamenn stærstu vélarnar til að finna þær.

Dauðaríki Majanna
Í Mexíkó hafa fornleifafræðingar fundið inngang að hinu óhugnanlega dauðaríki Majanna, Xibalba, sem leynist í jörðu. Í þessu völundarhúsi þröngra ganga og myrkra hella ríktu dauðaguðinn og aðrir ógnvekjandi guðir.

Heilaþvottur
Hvernig er unnt að rugla nokkurn svo mikið í rýminu að hann sjái tilgang með því að sprengja sjálfan sig og saklaust fólk í loft upp? Svarið er fólgið í heilaþvotti. Komin er út ný bók sem fjallar um hvernig Stalín heilaþvoði meðlimi flokks síns, leit innan CIA að hentugu heilaþvottaefni, og aðferðir sem sumir sértrúarsöfnuðir beita til að tæla til sín nýja áhangendur.

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Var Nostradamus snjall spámaður?
Það er iðulega talað um Nostradamus, en eru spádómar hans yfirleitt mjög nákvæmir?