 |
| 8. tbl. 2009 |
Meðal efnis í 8. tölublaði 2009
Skipsflak segir blóðuga viðskiptasögu
Kafarar hafa loks, eftir langa leit, fundið flak portúgalska skipsins São José, sem skotið var í kaf úti fyrir Mósambík árið 1622. Flakið segir sögu þess tíma er evrópsku stórveldin börðust hatrammlega um yfirráðin yfir gróðavænlegri versluninni við Austurlönd.
Nanórör breyta CO2 í umhverfisvænt eldsneyti
Nú má nota nanórör úr kolefni til að umbreyta gróðurhúsalofttegundInni koltvísýringi í fljótandi eldsneyti. Einn helsti skúrkurinn að baki gróðurhúsaáhrifunum gæti orðið að loftslags-umhverfisvænu eldsneyti framtíðarinnar.
Spendýr átu risaeðlur
Fyrstu spendýrin voru mun þróaðri en til þessa hefur verið talið. Fyrir 150 milljón árum höfðu þau þegar þróast svo mikið að sumar tegundir veiddu litlar risaeðlur og rannsóknir síðustu ára hafa sýnt að þau breiddust skjótt út á landi, í vatni og í lofti.
Hafstraumarnir eru púls jarðar
Við getum ekki séð þá en hafstraumarnir flytja feiknarlegan vatnsmassa og móta skilyrði lífs á jörðinni. Við vitum samt furðulítið um þá. Þessu er hinu metnaðarfulla rannsóknarverkefni, Argo, ætlað að leiðrétta.
Eyðsluklær og spilafíklar
Fíknin í að spila eða versla getur verið alveg jafn sterk og þörf eiturlyfjaneytanda fyrir eiturlyf. Nýlegar rannsóknir hafa leitt í ljós að boðefnasameindir í heila skipta sköpum fyrir löngunina og ánægjuna yfir að gera það sem við vitum að gerir okkur illt.
Lítið skref fyrir manninn, en risastökk fyrir mannkyn.
Hin frægu orð Neil Armstrongs á mánanum voru hápunkturinn á átta ára undirbúningi, þar sem 400.000 manns höfðu stritað við að raungera undraverðan draum.