 |
| 9. tbl. 2009 |
Meðal efnis í 9. tölublaði 2009
Svifdrekar virkja orku vindsins hátt yfir vindmyllunum
Í háloftunum blása öflugir og stöðugir vindar. Nú hyggjast hollenskir fræðimenn nýta krafta stormanna og virkja orku þeirra með risastórum svifvængjum sem fljúga í mörg hundruð metra hæð.
Trúarbrögð og þróun haldast í hendur
Allar götur frá því er fyrstu menningarsamfélögin litu dagsins ljós hafa trúarbrögð verið hluti af lífi manna og þetta hefur vakið furðu þróunarlíffræðinga. Hvernig er unnt að útskýra hvers vegna trúað fólk kýs að verja svo miklum tíma og mikilli orku, auk fjármuna, í starfsemi sem ekki virðist hafa neinn líffræðilegan ávinning í för með sér?
Vatn stöðvar snarpa jarðskjálfta
Jarðskjálftafræðingar hafa komist að raun um að vatn úr jarðgrunninum geti gegnt hlutverki eins konar smurefnis á jarðskjálfta sem ella hefðu orðið snarpir.
Lending í blindni
Apollo 11, sem kom fyrstu mönnunum til tunglsins, var alger sigursaga. En fram að sigrinum þá þurftu geimfararnir að fara í gegn um dramatíska lendingu.
Hvað er þyngdarafl?
Newton uppgötvaði það, Einstein betrumbætti það og gervihnettir hafa staðfest það. Þrátt fyrir þetta lítur út fyrir að lögmálið um þyngdaraflið þurfi endurskoðun.