Síðasta prófi á SOFIA (Strratospheric Observatory for Infrared Astronomy) er lokið og bæði hinn 2,5 m stóri speglasjónauki og breytt flugvélin hafa staðist það með glans. Rannsóknarstöð er nú reiðubúin fyrir 20 ára stjarnfræðilegar mælingar. Vikulegir leiðangrar fara fram í 13 – 15 km hæð yfir jörðu, þar sem 99% vatnsgufunnar er að finna í neðri lögum. Og það er einmitt vatnsgufan sem torveldar góðar innrauðar mælingar frá rannsóknarstöðvum á jörðu niðri.