Verklok nálgast við byggingu nýrrar brúar yfir Svartagil eða „Black Canyon“ á mótum Arizona og Nevada í Bandaríkjunum og skammt frá Hoover-stíflunni. Þessi bogabrú verður 580 metra löng og 300 metra há og er byggð úr nýrri gerð blöndu stáls og steinsteypu. Brúnni er ætlað að létta á umferð yfir Hoover-stífluna og á að verða tilbúin í haust.