Fylgstu með okkur á Twitter Sjáumst á FaceBook Gerast áskrifandi

Ný tækni

Nýjasta greinin
Klukka sýnir rafmagnsnotkunina

Finnist manni sem rafmagnsreikningarnir hækki stöðugt eru hér góð tíðindi á ferð. Tendril Vision-klukkan fylgist með tíma og rafmagnsnotkun. Jafnframt gerir hún grein fyrir hvenær sólarhringsins rafmagnið er ódýrast svo setja megi þvottavélina í gang. Lesa meira

Greinalisti

Borðtölvan þekkir þig

Sony keppir nú við borðtölvuna Surface frá Microsoft. Sony AtracTable getur einnig borið kennsl á hluti eins og t.d. farsímann þinn eða tómt bjórglasið en aukreitis getur þessi nýja borðtölva einnig numið hreyfingar – og innan tíðar greint milli kynja, aldurs og jafnvel hvernig notandinn er stemmdur. Þetta gæti komið að góðum notum ef tölvan er t.d. notuð á bar þann Lesa meira

Heitalofts-djúpsteikingarpottur sparar mikla fitu

Það virðist næstum of gott til að vera satt. Djúpteikingarpottur sem notar 80% minni fitu með jafn góðum árangri. Þetta er það sem Philipps segir hina nýju Airfrier áorka – bæði með franskar kartöflur, fisk og hvaðeina sem menn vilja djúpsteikja. Ef sú er raunin getur tæknin orðið til þess að draga úr þeirri offituplágu sem breiðist um heim allan. Airfrier virk Lesa meira

Koltrefjar gera ryksugur betri

Koltrefjar eru undravert efni og notað í orrustuflaugar, mótorhjól og ofurbíla og nú er röðin komin að heimilistækjum. Fyrirtækið Dyson vinnur að gerð ryksugu sem er að hluta til útbúin úr fágætum efnum. En Dyson nýtir ekki koltrefjarnar til að gera ryksuguna léttari. Koltrefjarnar eru nýttar vegna eiginleika þeirra gagnvart stöðurafmagni. Þær er að finna í burst Lesa meira

Krúsin varar við köldu kaffi

Hitanæm kaffikrús getur komið sér vel fyrir þá sem bregður illa við þegar síðasti kaffisopinn er orðinn kaldur. Í könnunni er rafhlaða sem breytir um lit þegar drykkurinn sem hellt er í ílátið er meira en 36 stiga heitur. Krúsin gefur þó enga aðvörun ef kaffið er of heitt, þannig að enn er hægt að brenna sig. Lesa meira

Glitrandi úr með forneðlubeinum

Hvað í ósköpunum á milljarðamæringur að gera til að slá út gullúr vina sinna? Svarið kemur kannski með úrinu Jurassic Tourbillion-úrinu frá Louis Moinet. Auk þess að vera úr 18 karata platínu og með 56 demanta, sem samtals eru 3,46 karöt, eru hér líka steingerðar flísar úr forneðlubeinum. Bara spurningin hvort úrið mæli kannski jarðsögulegan tíma. Lesa meira

Rafknúið fellihjól í bílinn

Bílstjórar sem annað slagið vilja finna hárið flaxa fyrir vindinum, geta nú skipt út varadekkinu og sett í staðinn rafknúið reiðhjól sem unnt er að fella saman og tekur þá ekki meira pláss en varadekk. Hér er engin keðja en hjólið hleður sig upp með rafmagni frá bílnum þegar það er á sínum stað í skottinu. Þessi vistvæna hugmynd kemur frá Volkswagen, ekki fylgir Lesa meira

Tölvuskjár með tvö andlit

Hvort á maður að velja lestölvu sem ekki þarf að hlaða nema örsjaldan, eða skjá sem nota má til að horfa á bíómynd en tæmir rafhlöðuna á tveimur tímum. Þessi valkvíði hverfur innan skamms á vit fortíðarinnar. Ný lófatölva, Notion Ink Adam á nú að veita iPad frá Apple harða samkeppni. Skjárinn verður búinn þeim sérstæða eiginleika að geta ýmist nýst sem H Lesa meira

Músin fellur að höndinni eins og hanski

Eftir að hafa lengi þjáðst af verkjum vegna of mikils álags við notkun tölvumúsarinnar, ákvað Kanadamaðurinn Mark Bajramovic að hanna hina fullkomnu tölvumús. Afraksturinn kallast AirMouse og tækið þróaði hann í samvinnu við námsfélaga sinn, Oren Tessler. Músinni er smeygt upp á höndina svipað og hanska og leysigeisli sér um sambandið við tölvuna. AirMouse er a Lesa meira

Draumaskemmtibátur með lyftu

Láti maður sig dreyma um skemmtibát má allt eins eiga sér stóra drauma. Þessi nýi glæsibátur frá Schöpfer Yachts gæti innan tíðar látið mjög stóra drauma rætast. Lögunin er óneitanlega sérstæð og minnir helst á kjálka úr risaeðlu, en þar fyrir utan er þyrlupallur fremst, rými fyrir 16 gesti og stór sundlaug, en úr henni má synda um göng yfir í litla í skutnum. Lesa meira

Vitvélar segja gestum til vegar

Í aðalstöðvum stórbankans Santander Group í Madrid eru nýir og sérkennilegir leiðsögumenn komnir til starfa. Litlar, rauðar vitvélar taka á móti gestum og fylgja þeim á réttan stað. Þú þarft bara að slá inn ákvörðunarstaðinn á snertiskjá. Lesa meira

GREIN 1 - 10 AF 68 GREINUM SÍÐA:   1 2 3 4 5 6 7
Áhugaverðar greinar
Þemagreinar

150 ára barátta við Everest

Manninn hefur lengið langað til að stíga á topp hæsta fjalls heims. Leiðin er hin lengsta og mannskæðasta sem menn hafa tekist á við. Hún hefst með mælingum Breta á miðri 19. öld en það er ekki fyrr en upp úr 1920 sem þeir eru reiðubúnir að reyna við tindinn í fyrsta sinn.

Lifandi Vísindi birti fjórar stórar greinar um merkustu leiðangrana á toppinn: Þann fyrsta, sem því miður misttókst, þann sem tókst, þegar Edmund Hillary sté á tindinn, þann sem Reinhold Messner fór einsamall og svo um árið 1996, sem var þakið slysum.

Everest #tab1
Hnattrænar #tab2
Apollo #tab3
Auglýsing
ELÍSA GUDRÚN EHF. - Útgáfufélag Lifandi Vísinda
  • Klapparstígur 25
  • 101 Reykjavík
  • Sími: 570-8300
  • Opnunartími: 9 - 12 alla virka daga
  • lifandi@visindi.is
Höfundarréttur: isProject ehf. © 2010. Allur réttur áskilinn.