Fylgstu með okkur á Twitter Sjáumst á FaceBook Gerast áskrifandi

Skjalasafnið

Nýjasta greinin
Ítali fann upp dulmálshjól

Ítalinn Leon Battista Alberti var einn af þúsundþjalasmiðum endurreisnartímans. Hann var rithöfundur, listamaður, arkitekt og áhugamaður um dulmál. Árið 1467 lýsti hann kóðahjóli sem samsett var úr tveimur málmskífum. Sú ytri var föst en þeirri innri mátti snúa. Á ytri skífunni voru bókstafirnir í stafrófsröð en mynstrið á innri skífunni var annað. Með hjálp kóðahjólsins var hægt að senda skilaboð sem ekki var unnt að lesa nema viðtakandinn hefði sams konar kóðahjól og vissi hvernig ætti að stilla það. Fram til þessa tíma höfðu menn getað leyst flestar gerðir dulmáls með tíðnigreiningu, sem sé bera saman hve oft tiltekið tákn kemur fyrir í textanum með samanburði við tíðni bókstafsins í tungumálinu. Það var Lesa meira

Greinalisti

Breskt herskip varð fyrir eigin tundurskeyti

Í seinni heimsstyrjöld fylgdi breska herskipið Trinidad 20 skipum sem fluttu hergögn til Sovétríkjanna. Í mars 1942 lenti Trinidad í átökum við þýskan tundurspilli í Norður-Íshafinu og skaut að honum allmörgum tundurskeytum. Eitt tundurskeytanna var þó svo alvarlega gallað að það fór í hring og kom til baka. Trinidad skaddaðist alvarlega en komst þó heilu og höldnu ti Lesa meira

Duftkaffið fékk ekki undirtektir

Það var svo snemma sem 1771 sem Englendingi einum tókst að framleiða kaffiduft sem leystist upp í vatninu án þess að skilja eftir sig neinn korg. Enginn reyndist þó kæra sig um slíkt skyndikaffi og það fékk japanski efnafræðingurinn Sartori Kato líka að reyna þegar hann fékk einkaleyfi á duftkaffi í Bandaríkjunum árið 1903. Það var ekki fyrr en hraði samfélagsins tó Lesa meira

Læknir smitaði fólk af gulu í tilraunaskyni

Ef þú veikist, færðu 100 dollara. Ef þú deyrð fá erfingjarnir 200 dollara. Þannig hljóðaði tilboð til sjálfboðaliða á Kúbu árið 1900 þegar bandaríski herlæknirinn Walter Reed gerði tilraunir sínar með gulusóttarsmit. Á þessum tíma vissi enginn hvað olli þessum sjúkdómi sem oft var banvænn. En með flugnastungutilraunum sínum komst Reed að því að það var te Lesa meira

Heyrnarlaus aðstoðarkona bjó yfir snilligáfu

Henrietta Leavitt (1868-1921) var í lok 19. aldar ráðin að Harvard-stjörnuathugunarstöðinni, þar sem hún átti að flokka ljósmyndir af stjörnuhimninum. Hún var því nær heyrnarlaus, en reyndist búa yfir ótrúlegri hæfni til að lesa í stjörnumyndir. Leavitt kom sér upp ákveðinni tækni til að mæla ljósstyrk einstakra stjarna. Hún rannsakaði síðan svonefnda sefíta, Lesa meira

Lentu í risaflóðbylgju á litlum báti og lifðu af

Ásamt 7 ára syni sínum var Howard Ulrich að renna fyrir fiski á Liuya-flóa við Alaska þann 9. júlí 1958. Um níuleytið um kvöldið heyrðist ógnarlegur hávaði, þegar jarðskjálfti olli mikilli skriðu í fjallshlíð við ströndina. Meira en 30 milljón rúmmetrar af klöpp og grjóti þeyttust niður í hafið úr allt að 1.000 metra hæð. Augnabliki síðar reið risastór fl Lesa meira

Lest hélt jafnvægi á einum teini

Írsk-ástralski uppfinningamaðurinn Louis Brennan (1852-1932) var sannfærður um það árið 1903 að hann hefði fundið upp járnbraut framtíðarinnar. Hann fékk þá einkaleyfi á tæknilega mjög þróuðu kerfi sem gerði það að verkum að járnbrautarvagnar héldu jafnvægi á einum teini. Uppfinningin sló þó aldrei í gegn, því fólk þorði ekki að treysta á öryggi hennar. Lesa meira

Franskur munkur drekkur stjörnur

Stjörnurnar sem munkurinn innbyrti þetta ágústkvöld var freyðivín sem síðar hlaut heitið Kampavín. Dom Pérignom hefur verið kallaður faðir kampavínsins, en sannleikurinn er þó sá að hann varð ekki fyrstur manna til að uppgötva hvernig brugga mætti þetta sérstaka, freyðandi vín. Þegar um 1660 voru Englendingar farnir að bæta geri og sykri út í vín og framköllu Lesa meira

Hvar eru bein Hitlers?

Síðustu dagar Þriðja ríkisins einkenndust af blóðbaði og eyðileggingu. Miklir bardagar geisuðu í Berlín og í rammgerðu loftvarnarbyrgi undir Þinghúsinu í Berlín frömdu Adolf Hitler og Eva Braun sjálfsmorð þann 30. apríl 1945. Þegar aðstoðarforingi Hitlers, Heinz Linge, hafði gengið úr skugga um að bæði væru látin voru líkin borin upp í sundursprengdan garð að Lesa meira

Sofandi kona verður fyrir loftstein

Sum slys eru fáránleg. Önnur alls ólíkleg og einmitt slíkt slys átti sér stað þriðjudaginn 30. nóvember 1954 og gerði bandaríska konu svo víðfræga að blaðamenn sátu um hús hennar í marga daga. Þetta furðulega óhapp átti sér stað um hádegisbilið þegar Ann Hodges hugðist leggja sig í smástund. Hún vaknaði við mikinn hávaða og fann fyrir verkjum í mjöðmin Lesa meira

Hús framtíðar

Plast er það efni sem hús framtíðarinnar verða byggð úr. Það telja verkfræðingar við Massachussetts Institute of Technology sem hafa nú sýnt tillögu sína á fjölskylduheimili árið 1986 í sýningu í Disneylandi í Kaliforníu, BNA. Hvern dag sækja um 10.000 manns „House of the Future“ heim sem endurspeglar væntingar til komandi tíma; húsgögn, stólar, borð, matar Lesa meira

GREIN 61 - 70 AF 105 GREINUM SÍÐA:   1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11
Áhugaverðar greinar
Þemagreinar

150 ára barátta við Everest

Manninn hefur lengið langað til að stíga á topp hæsta fjalls heims. Leiðin er hin lengsta og mannskæðasta sem menn hafa tekist á við. Hún hefst með mælingum Breta á miðri 19. öld en það er ekki fyrr en upp úr 1920 sem þeir eru reiðubúnir að reyna við tindinn í fyrsta sinn.

Lifandi Vísindi birti fjórar stórar greinar um merkustu leiðangrana á toppinn: Þann fyrsta, sem því miður misttókst, þann sem tókst, þegar Edmund Hillary sté á tindinn, þann sem Reinhold Messner fór einsamall og svo um árið 1996, sem var þakið slysum.

Everest #tab1
Hnattrænar #tab2
Apollo #tab3
Auglýsing
ELÍSA GUDRÚN EHF. - Útgáfufélag Lifandi Vísinda
  • Klapparstígur 25
  • 101 Reykjavík
  • Sími: 570-8300
  • Opnunartími: 9 - 12 alla virka daga
  • lifandi@visindi.is
Höfundarréttur: isProject ehf. © 2010. Allur réttur áskilinn.