Ítalinn Leon Battista Alberti var einn af þúsundþjalasmiðum endurreisnartímans. Hann var rithöfundur, listamaður, arkitekt og áhugamaður um dulmál. Árið 1467 lýsti hann kóðahjóli sem samsett var úr tveimur málmskífum. Sú ytri var föst en þeirri innri mátti snúa. Á ytri skífunni voru bókstafirnir í stafrófsröð en mynstrið á innri skífunni var annað. Með hjálp kóðahjólsins var hægt að senda skilaboð sem ekki var unnt að lesa nema viðtakandinn hefði sams konar kóðahjól og vissi hvernig ætti að stilla það. Fram til þessa tíma höfðu menn getað leyst flestar gerðir dulmáls með tíðnigreiningu, sem sé bera saman hve oft tiltekið tákn kemur fyrir í textanum með samanburði við tíðni bókstafsins í tungumálinu. Það var Lesa meira
Óttinn við efnavopnaáras í síðari Heimsstyrjöldinni jók spurn almennings eftir gasgrímum. Hvarvetna mátti sjá fólk með grímur – jafnvel á baðströndunum. Gríman var upphaflega fundin upp árið 1799 til að verja námuverkamenn fyrir hættulegum gastegundum." Lesa meira
Það vakti mikla ólgu þegar Dýragarðurinn í Lundúnum seldi árið 1882 stóran afríkanskan fíl, Jumbo, til Barnum & Baley Circus í BNA. Þúsundir barna sendu mótmælabréf, en án árangurs og fíll hélt yfir hafið. 10.000 dölum fátækari auglýstu sirkuseigendurnir þennan vinsæla fíl á plakötum og tíu dögum síðar höfðu þeir rakað saman 30.000 dölum. Jumbo var d Lesa meira
Tímafrekir birgðaflutningar urðu til að Napóleón hershöfðingi hét 12.000 frönkum fyrir nýjan máta við að varðveita mat árið 1795. 14 árum síðar fann matvinnslumaðurinn Nicholas Appert upp á að innsigla mat í glerkrukku og hita hann upp. Tindósin fylgdi í kjölfarið 1810, en það var fyrst árið 1855 sem dósaopnari kom til sögunnar. Lesa meira
Hinn vinsæli þýski kappakstursökumaður, Bernd Rosemeyer, þekktur sem Silfurrakettan, er allur eftir kappakstur við landa sinn Rudolf Caracciola. Ríkiskanslari Þýskalands, Adolf Hitler, orðaði fyrr um árið ósk um að hraðametið á landi skyldi sett af þýskum manni í þýskum bíl á þýskri hraðbraut. Fremstu kappakstursmenn okkar tíma létu í gær draum Hitlers rætast Lesa meira
Árið 1936 setti kjörbúðareigandinn Sylvan Goldman hjól undir umbyggðan fellistól með tveimur körfum. En svo brá við að viðskiptvinirnir tóku á sig krók framhjá nýju vögnunum. Konurnar sögðust hafa fengið nóg af að ýta barnavögnum á undan sér og karlmenn óttuðust að sýnast ekki nógu sterkir. Það var ekki fyrr en Goldman réð þykjustuviðskiptavini til að nota Lesa meira
Sagan hefst 1941 þegar þýskur kafbátur skaut þremur tundurskeytum að enska herskipinu Barham. Skipið sökk og 861 sjómaður drukknaði. Þjóðverjarnir voru ekki vissir um að þeir hefðu hitt og breska flotastjórnin ákvað að halda atburðinum leyndum. Um svipað leyti hélt skoska konan Helen Duncan miðilsfund og sagði þar frá því að Barham hefði sokkið. Einn hinna látnu s Lesa meira
Sem fyrrverandi flugmaður í bandaríska flotanum var Ed Brown yngri sannfærður um að flugvélar ættu eftir að verða algeng einkafarartæki. Þann 3. júní 1948 opnaði hann því stórt flugvélabíó skammt frá Wall Township í New Jersey. Gestir áttu að koma fljúgandi, lenda á mjórri flugbraut við hliðina á bíóinu og leggja síðan flugvélunum framan við stórt sýningar Lesa meira
Skoska lækninum dr. James Lind hefur tekist að finna lækningu á sjúkdómnum skyrbjúgi, sem talinn hefur verið ólæknandi og leggst á sjómenn í langsiglingum. Enn þekkir enginn orsakir þessa sjúkdóms sem einkennist af bólgum í tannholdi, tannlosi og blæðingum í húð, ásamt því að sár gróa ekki. Dr. Lind hefur lengi velt því fyrir sér að fæðan um borð skipti hér Lesa meira
Með miklum hvelli springur gríðarstór tankur við höfnina í Boston fyrirvaralaust. Út úr þessum 15 metra háa geymi þeytast 9 milljón lítrar af þykkfljótandi og límkenndri sykurlausn af svo miklum krafti að hún myndar fjögurra og hálfs metra flóðbylgju sem veldur eyðileggingu og dauða. Heilu húsin lyftast af undirstöðum sínum og lest á upplyftri braut fer út af sporinu Lesa meira
Árið 1864 lagði vagnalest upp frá Kansas í átt að New Mexico, 1.100 km leið yfir opið land þar sem indíánar réðu ríkjum. Meðal þeirra sem ráðnir voru sem aðstoðarsveinar var hinn 13 ára gamli Robert McGee. Foreldrar hans voru látnir og hann varð sjálfur að afla sér lífsviðurværis. Leiðin var hættuleg og framan af kom til minni háttar árekstra við indíána. En Lesa meira