Það þykir orðið eðlilegt að mynda hvaðeina sem maður tekur sér fyrir hendur og hlaða því niður á Youtube. Þess vegna hefur Oregon Scientific útbúið myndavél sem getur tekið upp 1080 p í HD, tekið myndir í 5 megapixlum og má festa hana við nánast hvað sem er. Lesa meira
Saltið í Dauðahafinu berst með ánni Jórdan sem rennur út í hafið. Þó svo að vatnið í ánni sé ferskvatn felur það engu að síður í sér örlítið af salti. Þar sem Dauðahafið hefur ekkert frárennsli en glatar einungis vatni úr sér gegnum uppgufun, safnast saltið smátt og smátt fyrir. Það vatn sem gufar upp er nánast hreint vatn og skilur saltið eftir sig í hafinu Lesa meira
Oddaflug dregur umtalsvert úr loftmótstöðu og þar af leiðandi eyða fuglarnir minni orku og komast þess vegna lengra án þess að þreytast. Þegar loftið yfirgefur vængi fuglanna myndast nefnilega uppstreymi loftsins fyrir aftan hvern fugl og því reynist flugið honum auðveldara. Hver fugl flýgur fyrir vikið eilítið hærra en sá fyrir framan og þeim mun aftar sem fuglarnir eru Lesa meira
Enginn veit fyrir víst hvaðan hjartalögunin, sem notuð er í tengslum við ást og rómantík, er fengin. Stílfærða og táknræna hjartað líkist líffærinu hjarta aðeins að mjög óverulegu leyti. Bogana tvo, sem eru svo mjög einkennandi efst á rómantísku hjörtunum, er sem dæmi ekki að finna í hjartanu sem slær í líkömum vorum en hins vegar minna þeir allmikið á kvenlega Lesa meira
Maðurinn er með á að giska fimm milljónir hára á líkamanum, sem skiptast þannig að um 100.000 vaxa í hársverðinum en afganginn er að finna víðs vegar um líkamann, að undanskildum lófum og iljum. Hvert einasta hár myndast í sínum eigin hársekk, sem stjórnast af boðefnum líkamans um að láta hárið vaxa, stöðva vöxtinn og leggjast í dvala ellegar að sleppa taki Lesa meira
Ástæður þess að reyk skipa er hleypt út í andrúmsloftið en ekki í sjóinn eru margar. Í fyrsta lagi eykst þrýstingurinn mjög hratt í vatni, eða um u.þ.b. 10 hundraðshluta af loftþrýstingi fyrir hvern metra undir yfirborði sjávar. Þetta gerir það að verkum að beita þyrfti þrýstingi til að hleypa reyknum út í sjóinn og afkastageta vélarinnar myndi að sama skapi m Lesa meira
Norðurljósin, eins og við þekkjum þau, er einnig að finna á suðurhveli jarðar en þar kallast þau raunar suðurljós. Latneska heitið er aurora, en það var einmitt nafn rómversku dagrenningargyðjunnar, og myndir af henni minna mikið á litadýrðina sem við þekkjum af norðurljósunum. Norðurljósin myndast í kringum segulpólana þegar hlaðnar agnir frá sólu rekast á lofth Lesa meira
512 manns frá 38 löndum hafa farið út í geim. Til að teljast með, þarf maður að hafa farið í 100 km hæð. Lesa meira
Jarðskjálftar stafa af hreyfingum jarðskorpuflekanna og styrkur þeirra er mældur á svonefndum Richterkvarða. Harðasti jarðskjálfti sem hingað til hefur mælst, varð í Chile árið 1960 og mældist 9,5 á Richter. Jarðskjálftinn í Indlandshafi 2004, sá hinn sami og leiddi af sér hina mannskæðu flóðbylgju, var 9,3 og því einnig meðal allra öflugustu skjálfta. Jarðskjá Lesa meira
Hlátur er ákveðið tjáningarform, sem m.a. sýnir afstöðu okkar til annarra. Þótt vissulega sé hægt að hlæja með sjálfum sér, hafa rannsóknir sýnt að fólk er 30 sinnum líklegra til að hlæja þegar það er í hópi með öðru fólki. Yfirleitt gefur hláturinn til kynna traust og samkennd gagnvart þeim sem hlæja með okkur. En öfugt við aðra prímata sem aðeins brosa t Lesa meira
Þótt hitamælirinn sýni hita yfir frostmarki, getur loftið virst ískalt þegar vindurinn blæs. Ástæðan er þó ekki sú að vindurinn kæli loftið, heldur verða loftskipti við húðina hraðari og hún nær því síður að verma upp loftlagið næst sér. Þetta fyrirbrigði kallast almennt vindkæling. Þegar líkaminn framleiðir hita, flytur blóðið hann til allra líkamshlut Lesa meira