Áður var aðeins Challengergjáin en nú kemur HMRG-gjáin til sögunnar. Það eru vísindamenn við Hawaii Institute of Geophysics Planetology sem nú hafa uppgötvað djúpa gjá á hafsbotni - gjá sem fyllilega stenst samanburð við Challengergjána. dýpstu gjá heimshafanna, sem nær niður á 11 km dýpi. Rétt eins og Challengergjáin er HMRG-gjáin í Marianerdjúpi sem er að finna í Kyrrahafi ekki alllangt undan Filippseyjum.
Það var þegar vísindamennirnir voru að kortleggja svæðið í kringum eyjuna Guam, sem tæki þeirra sýndu skyndilega óvenjumikið og óvænt dýpi. Við þetta verk notuðu vísindamennirnir sóntæki, tengt köfunartæki sem dregið var á eftir skipinu. Enn hefur ekki reynst mögulegt að ákvarða dýpi HMRG-gjárinnar nákvæmlega en vísindamennirnir álíta að hún sé ámóta djúp og Challengergjáin. Nú er ekki til neinn kafbátur sem fær er um að kafa alveg niður í HMRG-gjána. Eini kafbáturinn sem komst svo djúpt, japanski kafbáturinn Kaiko, glataðist í óveðri í vor. Aðeins einu sinni hafa menn kafað niður á botn Challengergjárinnar. Það varið árið 1960 og vísindamennirnir tveir voru fjóra klukkutíma á leiðinni niður. Og í ljós kom að meira að segja hér niðri var líf. Þeir sáu fjölda af sandormum og rækjum og fundu um 200 tegundir af örverum.