Það er aldagamall draumur manna að sigla alla leið til norðurpólsins og fjölmargar tilraunir hafa verið gerðar til þess. Engar þeirra báru þó árangur fyrr en 1977 þegar Sovétmenn komust þangað á kjarnorkuknúna ísbrjótnum Arktika, sem var sérstaklega styrktur. Eftir að hafa plægt sig í gegnum þykka ísbreiðu náði ísbrjóturinn alla leið á hinn landfræðilega norðurpól þann 17. ágúst. En eftir þetta hafa fleiri ísbrjótar farið þessa leið og ferðin þykir ekki lengur neitt sérstakt tiltökumál.
Það var þó reyndar í ágúst 1958 sem kafbátur komst fyrst á norðurpólinn. Þettta var bandaríski kjarnorkukafbáturinn Nautilus, fyrsti kjarnorkuknúni kafbátur sögunnar.
Fyrr á tíð var það vissum vandkvæðum bundið að finna nákvæmlega rétta staðsetningu hins landfræðilega norðurpóls, þar eð ísinn er á stöðugu reki á þessum slóðum. Nú er þetta á hinn bóginn leikur einn með hjá GPS-staðsetningarkerfisins og ferðir á pólinn eru orðnar alltíðar. Ævintýramenn reyna þó enn að komast á pólinn fótgangandi eða með flugvél, auk þess sem ísbrjótar fara þangað með ferðamenn.