Tækni

Innan tíðar gætu dularfullir fljúgandi diskar á himni orðið tiltölulega algeng sjón – a.m.k. ef vísindamennirnir hjá norska fyrirtækinu SiMiCon fá einhverju ráðið. Flugvélahönnuðurinn Vegard Hovstein er nú vel á veg kominn með litla, ómannaða vöktunarflugvél, sem helst líkist diski í útliti og getur lent og tekið sig á loft eins og þyrla. Vélin kallast “SiMiCon Rotor Craft” eða bara SRC og er reyndar fjarri því að vera fyrsta ómannaða njósnavélin en að sögn hönnuðarins eru það ekki margar slíkar vélar sem þurfa nánast ekkert pláss til flugtaks og lendingar. Þessi disklaga vél er 4,5 m í þvermál og getur tekið sig á loft af vörubílspalli en aðrar njósnavélar þurfa yfirleitt flugbrautir sem eru hundruð metra að lengd. Vélin hefur nú staðist ýmsar tilraunir í vindgöngum við norska Tækni- og vísindaháskólann. Næsta skref er að hanna eldflaugahreyfil sem passar nákvæmlega undir vélina án þess að skaga of langt niður. Þegar þetta hefur allt gengið upp, verður unnt að nota þessa vél til vöktunar bæði á vegum hers og lögreglu, en hún getur einnig unnið að kortagerð eða fundið upptök mengunar.