Mörg hús í bænum Nieuwport í Belgíu eru nú að hrynja. Og sömu örlög bíða mun fleiri húsa í framtíðinni – jafnvel í öllum bæjum meðfram hinum gömlu vesturvígstöðvum fyrri heimsstyrjaldarinnar á Flandri. Hér er ekki um að kenna neinum byggingargöllum, heldur standa þessi hús ofan á miklu netverki gamalla skotgrafa og jarðgangna sem grafin voru í fyrri heimsstyrjöldinni.
Það voru belgískir, breskir, franskir og ástralskir hermenn sem grófu þessi göng á sínum tíma. Í þeirri ringulreið sem ríkti eftir lok styrjaldarinnar, gleymdust göngin og fjölmörg hús voru reist á þessum slóðum. En nú, eftir meira en 80 ár, eru burðarbitarnir orðnir fúnir og farnir að gefa sig og húsin sem hvíla ofan á þeim farin að hrynja eitt af öðru. Breskir og belgískir jarðfræðingar og sagnfræðingar eru nú að meta umfang vandans og hafa nú þegar komist að raun um að gamlar skotgrafir og göng ógni tilvist bygginga meðfram allri hinni gömlu víglínu.