Það er ógerlegt að áætla nákvæmlega orðafjölda í tungumáli. Á t.d. að telja samsett orð og orð með fleiri en eina merkingu einu sinni eða oftar? Hvað með orð sem ekki eru lengur notuð? Og ber að telja slanguryrði og sérfræðiheiti með?
En þrátt fyrir alla slíka erfiðleika telja flestir málvísindamenn að flest orð séu til í enskri tungu. Ástæðan er sú að í ensku hafa svo oft verið tekin upp orð úr öðrum tungum um allan heim, jafnframt því sem ensk samheiti þeirra hafa varðveist.
Í stóru Oxford-orðabókinni eru ríflega 170.000 uppflettiorð en við það má bæta miklum fjölda sérfræðiorða, tækniorða, gamalla orða og orðum úr sérstökum mállýskum. Samtals verða þetta a.m.k. hálf milljón orða.