Sálfræði
Framtíðin er framundan en fortíðin að baki. Um þetta eru langflestir hjartanlega sammála. Þetta gildir þó ekki um Aymará-indíána sem hafast við í Andesfjöllum í Bolivíu, Perú og Chile. Nýjar greiningar á tungumáli þeirra og bendingasiðum sýna nefnilega að þetta fólk hefur þveröfugan skilning á tímanum. Sé Aymará-indíáni t.d. beðinn að nota bendingar til að tákna síðasta ár, bendir hann beint áfram en eigi hann að lýsa framtíðinni bendir hann aftur á bak yfir öxlina. Hið sama má greinilega sjá í tungumálinu. Aymará-indíánar nota orðið nayra um fortíðina, en orðið getur líka merkt “fyrir framan”, “augu” eða “sjón”. Og þegar þeir tala um framtíðina nota þeir orðið qhipa, sem merkir “aftur á bak”.