Steingervingafræði

Í meira en áratug hafa vísindamenn verið sammála um að aldauði risaeðlanna fyrir 65 milljónum ára hafi stafað af einum stórum loftsteini sem skall til jarðar og hafði ofboðsleg hamfaraáhrif á loftslagið. Nú kemur í ljós að loftsteinninn sem skall niður á Yucatanskaga í Mexíkó og myndaði hinn tröllvaxna Chicxulubgíg var að líkindum ekki einn á ferð. Nú þekkja vísindamennirnir tvo gíga til viðbótar frá sama tíma, annan í Norðursjó en hinn í Úkraínu. Þessar uppgötvanir styðja nýja kenningu um að það kunni að hafa verið heill svermur loftsteina sem rigndi yfir jörðina í lok krítartímabilsins. Hinn nýfundni gígur í Norðursjó er Silverpitgígurinn og álitinn 60 – 65 milljón ára gamall. Hinn er Boltysjgígurinn sem ný og nákvæm aldursgreining sýnir vera 65,2 milljón ára með nákvæmni sem skeikar mest um 600 þúsund árum. Báðir eru gígarnir sem sagt frá sama eða svipuðum tíma og Chicxulubgígurinn sem 65,5 milljón ára með mest um 600 þúsund ára skeikun.